Kirkjuritið - 01.12.1938, Page 31
Kirkjuritið. Suðureyrarkirkja i Súgandafirði.
401
eins og samninfíar hijóðuðu um, ok er hún vönduð að öllum
fráffangi.
Kirkjan er steinsteypuhús: Aðalhúsið 12,55 metr. á lengd og 7,35
metr. á breidd. Kór 3,58 X 4.19 metr. Turn 3,27 X 2,87 metr. og
hæð 14,15 metrar. Hvolfþak er að innan í kirkju og1 kór. Kirkjan
kostar, með altari, prédikunarstól, sætum, ofni. og raflögnum, svo
og girðingum umhverfis hana kr. 20.246,55. Þessi fjárhæð hefir
greiðst að fullu með fjársöfnun og framlagi frá Staðarkirkju,
nánar sundurliðað þannig: j^r
Gjafir frá ýmsum ...................... 4240,85
Ágóði af fiskilóðum ................... 3436,38
Sumardagurinn fyrsti .................. 2593,66
Minningargjafir......................... 814,20
Áheit .................................. 407,11
Sjónleikir ............................. 483,72
Fyrirlestrar ........................... 257,20
Sumargjafir (sérstakar) ................ 138,52
Fé úr samskotabauk ..................... 229,20
Vextir ................................ 4645,71
Framlag frá Staðarkirkju .............. 3000,00
Kr. 20246,55
Er þannig takmarkinu náð og því skilyrði fullnægt, sem Kirkju-
byggingarnefndinni var sett, að byggja kirkjuna skuldlaust.
Alt fram til ársins 1936 beindist aðalstarf nefndarinnar að því,
að koma upp kirkjunni sjálfri, en ei að síður var nefndinni það
ljóst, að tilfinnanlega vantaði fé til þess að prýða kirkjuna með
nauðsynlegum munum. En í þeim efnum hafði nefndin engar
serstakar áhyggjur, því að hún vissi, að Guð var í verki með henni
og treysti á hjálp hans og aðstoð góðra manna. Þetta traust brást
heldur ekki, því að skiimmu eftir að bygging var hafin, tóku að
berast fregnir um ýmsa muni, sem kirkjunni mundu gefast. Og
þegar kirkjan var fullgerð, voru komnar í eigu hennar eftirtaldir
munir að gjöf:
E Altaristafla (mynd af Kristi og lærisveinum hans), máluð af
Brynjólfi Þórðarsyni, frá frú Önnu Stefánsdóttur, ekkju síra
Þorvarðs sál. Brynjólfssonar prests að Stað, og börnum hennar.
2- Messuskrúði, frá kvenfélaginu Ársól, Súgandafirði.
I vær kirkjuklukkur og tvær ljósakrónur frá Súgfirðingum í
Keykjavík og vinum safnaðarins þar, fyrir forgöngu hr. Hans
Kristjánssonar forstjóra Sjóklæðagerðarinnar. Voru gjafir
þessar svo rausnarlegar, að þær einnig að mestu borguðu öll
hliðarljós kirkjunnar.