Kirkjuritið - 01.12.1938, Page 32

Kirkjuritið - 01.12.1938, Page 32
402 Ö. V.: Suðureyrarkirkja í Súgandaf. Nóv.—Des. 4. Tveir altarisstjakar frá frú Láru Ó. Kolbeins á stað. 5. Númeratafla frá hr. Kr. Arnóri Kristjánssyni, húsgagnasmið í Reykjavík. Allir eru munir þessir mjög vandaðir og svo fagrir, að sann- arlegt augnayndi er hverjum, sem sér þá. Verðmæti þeirra mun vera að minsta kosti 3500 krónur. Þess skal ennfemur getið, að hr. Kristján Albert Kristjánsson kaupmaður og systkini hans gáfu lóð undir kirkjuna. Pyrir nokkurum árum voru þau hjónin, frú Anna Ingvarsdóttir og hr. Jónas Tómasson tónskáld frá Isafirði, á ferð hér og efndu til hljómleika og stofnuðu með ágóðanum „Orgelsjóð Suðureyrar- kirkju“. Af skiljanlegum ástæðum beindist fjársöfnunin meira að kirkjunni sjálfri en þessum sjóði, og hafði hann því ekki náð miklum vexti, er til þess kom, að kaupa hljóðfæri fyrir kirkjuna, en án þess gat kirkjan vitanlega ekki verið. Og með því að kirkjubyggingarnefndinni þótti það ekki viðeigandi, að skila kirkj- unni af sér án þess að hljóðfæri fylgdi heeni, afréð hún að festa kaup á orgeli, sem talið er 2000 kr. virði. En í sambandi við kaupin bættust enn við vini kirkjunnar þau hjónin frú Guðrún Friðriksdóttir frá Mýrum og hr. forstjóri Karl Ryden í Iíeykjavík, sem gáfu til kaupanna 200 krónur. Og enn hafa sjóðnum borist gjafir frá ýmsum. En þrátt fyrir þetta er skuld vegna orgelkaup- anna 700 krónur, og er það hin eina skuld, er á kirkjunni hvílir nú. En vonandi hverfur hún áður en langt um líður. Að lokum vil ég þakka af alhuga öllum nær og fjær, sem á einn eða annan hátt hafa unnið að byggingarmáli Suðureyrarkirkju, og eiga fyrst og fremst allir Súgfirðingar þar óskiftar þakkir- Allar þcssar gjafir, smáar og stórar, eru mikils virði. En meira virði er sá hlýi hugur til málefnisins og ræktarsemi sú, er gefend- ur bera til átthaga sinna, sem stendur á bak við gjafirnar. Að minni hyggju hafa Súgfirðingar unnið þrekvirki með bygg' ingu Suðureyrarkirkju. Og byggingarsaga hennar ber þess Ijós merki, að hér ríkir góður andi, og að samtök og góður vilji fa miklu til vegar komið. Ég er sannfærður um, að Suðureyrarkirkja verður söfnuðinum til sannrar gleði og Guðs blessunar á komandi tímum. Og það er einlæg ósk mín, að eins og kirkjan gnæfir há og tignarleg yf*r Suðureyrarkauptúni, svo séu hugsanir Súgfirðinga hátt hafnar yfir alt dægurþras, þegar til stórra átaka kemur. Súgfirðingar! Verum ávalt minnugir þess, að sameinaðir stönd- um vér en sundraðir föllum vér. Guð blessi framtíð Súgandafjarðar. Örnólfur Valdemarsson.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.