Kirkjuritið - 01.12.1938, Page 34

Kirkjuritið - 01.12.1938, Page 34
Í04 Jón Helgason: Nóv.—Des. sem fylsta grein trúarlífsins, þ. e. þess, sem er innihald trúar hans. Mætti jafnvel orða þetta á þá leið, að hver trúaður hugsandi maður myndi sér, vitandi eða óvitandi, sína eigin guðfræði, því að „guðfræði“ er ekki annað en tilraunir trúaðra hugsandi manna til að gera sér grein innihalds trúar sinnar. Eðlilega fer þá svo, að trúarskoð- anirnar geta orðið margvíslegar og hver annari frá- hrugðnar, einnig þar sem menn eru sammála um, að trúin á Jesúm Krist sé hið mikla meginatriði trúar- innar. Þetta vita menn og viðurkenna og geta látið það liggja sér i léttu rúmi meðan hlutaðeigandi kveður ekki upp úr með frábrigðilegar skoðanir sínar. Sé hins vegar einhver einstaklingurinn svo gerður, að honum finnist hann ekki geta látið þær skoðanir sínar liggja í þagnar- gildi, af því að hann hefir sannfærzt um, að þær væru réttari eu aðrar, sem haldið liefir verið fram, þá koma hinir fram, sem hafa myndað sér aðrar skoðanir, sem þeir telja réttar og hefja mótmæli. Þannig eru alla.- trú- máladeilur orðnar til. I instu rót sinni eru þær ekki ann- að en deilur um skoðanir liver sé réttastur skilningur á trúarinnihaldinu. Um þetta, að trúiu á Jesúm Krist sé hinn óhagg- anlegi meginkjarni og þungamiðja kristindómsins, er sem sé enginn ágreiningur með kristnum mönnum. Um það eru þeir allir sammála, að lífsskoðun, hversu guð- rækileg sem hún er í eðli sínu, sé ekki kristileg, ef ekki er haft neitt tillil til þessa meginkjarna sem þungamiðju kristindómsins, og þá ekki heldur sá kristinn, sem ekki viðurkenni Jesinn Krist sem megin-trúarstaðreynd krist- indómsins. Sá sem aftur á móti viðurkennir trúna á Jesúm Krist sem meginatriði hinnar kristilegu lífsskoð- unar og Jesúm Krist sjálfan sem megin-trúarstaðreynd kristindómsins, liann ber kristið nafn með rjettu alt að einu þótt liann í skilningi sínum á þessari viðurkendu meginstaðreynd trúarinnar fari kannske aðrar leiðir en

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.