Kirkjuritið - 01.12.1938, Síða 46

Kirkjuritið - 01.12.1938, Síða 46
416 Jón Helgason: Nóv.—Des. safnaðar, um guðdóm Jesú Krists — að Jesú Kristur sé Guð — „sannur Guð af sönnum Guði“, eins og grísku kennifeður kirkjunnar til forna orðuðu það. En hvað felst í þessari játningu? Ég vil reyna að gera grein fyrir þvi i eins stuttu máli og mér er frekast unt, þótt ég hins vegar kenni vanmáttar míns til að gefa full- nægjandi útskýringu. Því að hér er vissulega komið inn á svið, þar sem auðveldara er að gefa sig á vald tilfinn- ingum sinum, en að gefa útskýringu, sem menn taki al- ment gilda, auðveldara að hvíla hjarta sitt í leyndar- dóminum, en að fnllnægja kröfum réttrar hugsunar, þvi að þegar ræða er um guðdómleika mannsins Jesú, þá er komið inn á svið leyndardómsins, - en „leyndardóm- inn tilbiðjum vér, en útskýrum hann ekki,“ hefir einn af kirkjufeðrunum sagt og þau orð halda sinu fulla gildi enn i dag. Þegar vér tölum um guðdóm Jesú Krists, þá verður að hafa það lnigfasl, að með þessu viljum vér ekki draga liið minsta úr sönnum manndómi lians, því að ekkert er áreiðanlegra en að Jesús Kristur var sannur maður og j)að svo fullkominn maðnr, að segja má, að hann sé eða liafi verið eini maðurinn, sem lifað liefir á þessari jörð, er algjörlega samsvari þeirri mynd af manninum, sem stóð skaparanum fyrir hugskotssjónum er hann i önd- verðu skóp manninn eftir sinni mynd. Iljá engum nema Jesú Kristi hefir skaparinn fengið að líta manninn eftir sinu lijarla algeran, heilagan, guðdómlegan mann. En eins og ég get talað um guðdómlegan mann þar sem Jesús er, eins get ég með sama sanni talað um mann- legan guðdóm, þar sem hann er, þvi að það er ekki ann- að en þetta, sem fyrir postulanum vakir er hann talar um „Guð opinberaðan í holdi“. Huginyndin um guðdóm Jesú Krists er til vor komiu úr sjálfu Nýja Testamentinu. Hefði ég ekki fundið hana þar, hefði ég aldrei dirfzt að lala um guðdóm í sambandi

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.