Kirkjuritið - 01.12.1938, Side 51
KirkjuritiÖ.
DR. JÓN HELGASON BISKUP.
Erindi dr. Jóns Helgasonar biskups, sem prentað er
liér að framan, er síðasta erindi hans á prestastefnu úr
biskupsstóli. Þykir ritstjóra Kirkjuritsins vænt um, að
það geymist í ritinu. Það lýsir kjarnanum i trúarskoðun
biskupsins, bæði fyr og síðar, og má finna þar sama
undirstrauminn sem í öðru því, er hann hefir um guð-
fræði ritað.
Nú um áramótin leggur liinn mikli athafnamaður og
lærdómsmaður niður biskupsstaf sinn eftir 22 ára biskups-
starf. Verður sá starfsferill bans ekki rakinn bér, en þess
skal aðeins getið, að Jón biskup gengur svo sjálfur frá
minningu sinni, að nafn bans mun sóma sér vel í biskupa-
röðinni. Mun enginn biskupa vorra bafa samið fleiri ril
en bann, og enn kunna fleiri merkisrit við að liætast, þótl
biskup sé nú á 3. ári yfir sjötugt. Nýlega átti ég tal við
fyrverandi skrifstofustjóra í kirkjumálaráðuneytinu um
biskupinn. Lét bann svo um mælt, að annan eins skrif-
stofumann befði bann aldrei þekt, og vart myndi lengra
komist á því sviði. Og sjálfur veit ég af eigin reynslu, hve
prýðilega biskupinn hefir skipað sess sinn meðal biskupa
á Norðurlöndum og aukið bróður Islands með framkomu
sinni.
Kirkjuritið væntir þess að njóta áfram góðvildar bans
°g stuðnings. Það óskar bonum ekki góðrar hvíldar, eins
°g venjulegt er um svo aldraða menn, lieldur góðra og
ánægjusamlegra starfa í hóp vandanranna og vina og við
virðingu og þökk þjóðarinnar.
Á. G.