Kirkjuritið - 01.12.1938, Page 56

Kirkjuritið - 01.12.1938, Page 56
Nóv.—Des. BRYNJÓLFUR ÞÓRÐARSON LISTMÁLARI. Á næstliðnu sumri (5. ág.) andaðist eftir uppskurð á spítala hér í bænum Brynjólfur Þórðarson listmálari. Þykir ástæða til að minnast þessa listmálara í tímariti þessu vegna þess, að hann hefir, meira en nokkur annar núlifandi list- málara vorra, unnið að því að skreyta kirkjur vorar með altaris- töflum. — Það, sem fyrst vakti athygli mina á Brynjólfi sál. sem altaristöflumálara, var altaristafla, sem hann hafði málað handa kirkjunni á Hvanneyri í Borgarfjarðarsýslu. Þóttist ég þá sjá, að meðan þessa málara nyti við, væri ekki þörf á að leita til útlanda til þess að fá gerðar altaristöflur. En það hafði verið gert í tíð beggja fyrirrennara minna í biskupsembætti og eins af sjálfum mér framan af, af því að ekki þóttu verk hinna innlendu listmál- ara, sem fáanlegir voru til að sinna slíkum verkefnum, fullnægja þeim kröfum, sem gera verður sérstaklega til altaristaflna, þótt ekkert væri að athuga við verk þeirra frá almennu listrænu sjón- armiði. Þótti mér því sjálfsagt að leita til Brynjólfs sál., hvenær sem ég eftir þetta var beðinn að útvega altaristöflu, og fékk ég aldrei ástæðu til að iðrast þess. Því ég kyntist þar sem hann var ekki aðeins ungum og efnilegum listmálara, sem pentskúfurinn lék í hendi, heldur einnig listmálara, með næmasta skilningi á einmitt þeim kröfum, sem gera verður til listaverka, sem hafa það ákveðna hlutverk að hafa áhrif til sálunota á þá, er í guðshús ganga sér til trúarstyrkingar og eflingar guðssambandi sinu í gleði og sorg. En það gerði Brynjólfi sál. ljúft og létt að fullnægja þessum kröfum, að hann var sjálfur trúhneigður maður með djúpri lotningu fyrir því, sem heilagt er og háleitt, enda sá þessa hins sama einnig vott í hinni ljúfmannlegu og yfirlætislausu fram- komu hans. Brynjólfur sál. var fæddur að Bakkakoti á Seltjarnarnesi 1906 og var aðeins réttra 32 ára er hann andaðist. (Foreldrar hans voru hjónin Þórður Jónsson, # ættaður frá Efritungu í Fróðár- hreppi, og kona hans Halldóra Ó. Jónsdóttir, er seinna átti Þórð Jónsson í Ráðagerði). Hafði hann hin síðari árin átt við tilfinn- anlegt heilsuleysi að stríða, er einatt batt hann hömlum í starfi hans, sem hann elskaði og lagði við hina mestu alúð, já, ef til vill um fram það, sem hin veika heilsa leyfði. Litmyndin framan á kápu Kirkjuritsins er af altaristöflu eftir hann, ófullgjörðri, en mjög fagurri. Hvítu deplunum er ætlað að auka svip hennar. Prentmyndastofan Leiftur hefir gjört mótin. J. H.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.