Kirkjuritið - 01.12.1938, Page 57

Kirkjuritið - 01.12.1938, Page 57
Kirkjuritið. SÁLMUR. (Þýddur úr dönsku). Hverfull dagur, augnablik i einu, en sú huggun fyrir þreytta sál. Kviða skal ei einu eða neinu, aldrei reynist föðurhöndin tál. Hann, sem elskar mig af mildu geði, mér á hverjum degi sendir hér þann hinn litla hluta harnts og gleði, liæfilegur sem mér er. Sérhvern dag hann vill mér einnig veita vernd og hjálp, sem nægir hverri tíð. Ég til hans í hverri þjáning leita; hugarstyrk mér gefur rödd hans blíð. Hann vill öll sin börn á ltöndum bera, Itrauði náðar metta alla’ á storð. Sent þinn dagur, svo skal afl þitt vera, segja drottins heilög orð. Hjálpa mér að livílast rótt í friði helgrar trúar á þín loforð blíð, villast ekki’ i veraldanna kliði, vera trúr og styrkur ár og síð. Lát mig ekki lengur kvíða neinu, lát mig taka bljúgri, heitri önd sérhvern dag, eitt angnablik i einu, út úr þinniföðurhönd. Jakob Jóh. Smári.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.