Kirkjuritið - 01.12.1938, Blaðsíða 66
Innlendar fréttir.
Nóv.—Des.
436
heimilið, meðal íslenzkra sjómanna, eins og hann hefir gert
nndanfarin sumur.
Þá dvaldi á Siglufirði í sumar ungur. sænskur prestur, G.
Rouden, frá Bohuslan í Suður-Svíþjóð og starfaði meðal fiski-
manna þaðan, er hér stunda reknetaveiðar. Hann hafði lesstofu
fyrir sjómennina, en hvern sunnudag flutti hann sænskar há-
messur í kirkjunni á Siglufirði, er voru vel sóttar.
Starfsemi þessi var á vegum Þjóðkirkjunnar sænsku og kosl-
uð af frjálsum framlögum safnaða i Svíþjóð. Er þetta fagurt
dæmi þess, hve söfnuðurnir þar heima láta sér ant um þá safnað-
armeðlimi, er fjarri dvelja heimilum sínum, þótt ekki sé nema
tiltölulega stuttan tíma, enda virtust sjómennirnir sjálfir kunna
vel að meta starf hins unga prests, sem fylgdi fiskiflota þeirra
liingað.
Þessi sjómannastarfsemi meðal útlendra liér á Siglufirði hefir
haft mikla þýðingu fyrir bæjarlifið. Mönnum er nú að verða æ
betur og betur augljós sú mikla nauðsyn, sem á því er, að hér
rísi upp vandað heimili fyrir íslenzka sjómenn og síldarfólk,
sem hér dvelur yfir sumarið og flest er heimilislaust og hefir
oft fremur lélegan aðbúnað yfir þennan tíma.
Slíkt heimili myndi án efa verða mörgum til blessunar og
draga úr óreglu og ýmsum vandkvæðum, sem athafnamiklu
starfslífi eru jafnan samfara.
Bindindismenn á Siglufirði undir forystu stúkunnar „Fram-
sóknar“ liafa þegar hafist handa að hrinda þessu nauðsynja-
máli í framkvæmd. Um nokkurt skeið hefir verið unnið að undi'r-
búningi málsins og er það nú svo vel á veg komið, að vart mun
líða lángur tími, þangað til hafist verður handa um fram-
kvæmdir.
Síðasta Alþingi samþykti heimild fyrir ríkisstjórnina að veita
30 þús. kr. styrk til heimilisins gegn 20 þús. kr. framlagi annars-
staðar l'rá, og yrði svo stofnunin rekin á ábyrgð bindindismanna
á Siglufirði.
Þá hefir Stórstúka íslands lofað að veita ábyrgð fyrir 20 þús.
kr. framlagi því, sem Alþingi tilskildi móti framlagi sínu.
Siglufjarðarkaupstaður hefir einnig lieitið málinu stuðningi.
Mál þetta hefir yfirleitt mætt velvild og skilningi og fengið
góðar undirtektir, og það er von bindindismanna hér, að þeim
takist að leiða mál þetta til farsælla lykta og að heimilið,
er það rís upp, megi verða landi og þjóð til blessunar.
Lesendum Kirkjuritsins mun ef til vill siðar verða skýrt nán-
ar frá þessu merkilega máli.
Óskar J. Þorláksson.