Kirkjuritið - 01.01.1940, Síða 9
Kirkjuritið.
Nýja árið.
3
hvert íslenzkt skip heilt af liafi morðvélanna. Blessun
hans er vissulega yfir öllum einlægum samtökum til
verndar og viðreisnar þjóðinni. Og þótt einangrun kunni
að sverfa fast að, þá verður það oss ekki að fjörlesti,
svo framarlega sem vér einangrum oss ekki sjálfir frá
Guði. Það mun valda æðslri þjóðarheill, að vér göngum
Kristi á hönd sem frelsara vorum og drotni og leitumst
við af alhug og fremsta megni að hertaka hverja hugs-
un og hvert starf til lúýðni við hann. Og alveg sér-
staklega eigum vér að kosta kapps um það tvent, að leiða
hvert harn til samfélags við lutnn og bera byrðarnar með
þeim, sem örbirgð og bágindi sækja heim. Þá mun nýja
árið þrátt fyrir alt og alt verða oss í vissum skilningi
gleðilegt ár. Þá munum vér geta tekið undir sálminn
forna í Gamla testamentinu, sem Lúter orti út af „Vor
Guð er borg á bjargi traust". Þá munum vér eiga eilt-
hvað af trúnni og kjarkinum, sem i honum felst:
Guð er oss hæli og styrkur,
örugg hjálp í nauðum.
Fyrir því hræðumst vér eigi, þótt jörðin haggist
og fjöllin bifist og steypist í skaut sjávarins.
IAtum vötn hans gnýja og freyða,
látum fjöllin gnötra fyrir æðigangi hans.
Drottinn hersveitanna er með oss,
Jakobs Guð vort vígi.
Gleðilegt nýjár í Jesú nafni.
Á. G.
RITSTJÓRN KIRKJURITSINS.
Stjórn Prestafélagsins hefir orðið við Lilmælum for-
manns, Ásmundar Guðmundssonar, og falið Magnúsi Jóns-
syni prófessor ritstjórn Kirkjuritsins ásamt honum frá
þessum áramótum.