Kirkjuritið - 01.01.1940, Side 21
Kirkjuritið.
Jesús Kristur er alvaldur drottinn
og eilifur Guð.
Fyrirlsstur, haldinn á Hraungerðismótinu 1939
af Guðmundi Einarssyni.
Hvað virðist yður uin Krist, hvers son er liann? Þetta
er spurning, sem liver niaður verður að fá svar við, og
sem hver maður þráir að fá svar við, sem er oss ljósast
af hinni miklu baráttu nútímans gegn trú kristinna manna
á guðdómseðli hans.
Nálægt 1900 árum fyrir fæðingu Krists var Ahraliam
fluttur þessi boðskapur frá himninum: ,,Af þínu afkvæmi
skulu allar þjóðir jarðariunar hlessun hljóta“, og á þenna
hátt er því lýst: Einkasyni, fæddum í þennan heim að
guðlegri ráðstöfun, verður fórnað á fjallinu Móría. Þessi
spádómur, fórnfæringarsaga ísaks, er tvöfaldur spádóm-
ur og því viss og óhagganlegur, þetta er eilíf ákvörðun
hins volduga drottins lierskaranna.
Fullum 700 árum fyrir Krists fæðingu spáði Jesaja:
-,Sjá, yngismær verður þunguð og fæðir son og lætur
hann heita: „Immanúel“. — í spádómunum táknar nafnið
höfuðeinkenni þess, sem nafn er gefið. Höfuðeinkenni
þessa barns er þá, að í því er „Guð með oss“, þ. e. a. s. Guö
kemur í þessu barni til vor á jörð. — Um þetta barn
segir spámaðurinn ennfremur: „Því að barn er oss fætt,
sonur er oss gefinn; á hans herðum skal höfðingjadómur-
inn hvíla; nafn hans skal kallað: Undraráðgjafi, guðhetja,
eilífðarfaðir, friðarhöfðingi.“ Þetta eru þá nöfn hans eða
innihald veru lians og einkenni máttar hans. „Undraráð-
gjafi“, þ. e. a. s. hinn yfirmannlega vitri; „guðhetja“,