Kirkjuritið - 01.01.1940, Page 26
20
Guðmundur Einarsson:
Janúar.
Vér, sem oft höfum þurft að krjúpa við krossinn Jesú
Krists, til þess að öðlast frið, vér horfum líka fvrst og
fremst á Jesú sem frelsarann, sem „gaf líf sitt til lausnar-
gjalds fyi’ir marga“, en það gat hann, og það getur liann
af því, að hann var og er alvaldur drottinn og eilifur
Guð.
Tómas sagði við Jesú eftir upprisuna: „Drottinn minn
og Guð minn“, og Jesús svarar: „Af því þú sást mig,
Tómas, trúir þú, en sælir eru þeir, sem trúa, þótt þeir
ekki sjái.“ Hér viðurkennir Jesús, að það sé rétt, sem
Tómas segir, að hann sé drottinn og Guð, og telur þá sæla,
sem trúa því þótt þeir ekki fái að sjá hann sjálfan, meðan
þeir dvelja í lífinu á jörð.
Eftir upprisu Krists virðast allir poslular hans hafa
verið sannfærðir um, að liann væri drottinn Guð, jafn föð-
urnum að valdi og tígn, en það sýna oss orðin: „Og liann
setti liann sér til hægri handar,“ og: „Hann leil dýrð Guðs
og Jesú standandi við hægri hönd Guðs“, eins og sagt er um
liinn fyrsta píslarvott, því að það, að vera einhverjum til
hægri handar táknar það, að hann sé jafn honum að valdi
og tign, að Jesús Kristur sé því jafn föðurnum, drottni
allsherjar.
Páll postuli segir: „Kristur Jesús er sá, sem dáinn er,
og meira en það, er upprisinn frá dauðum, hann sem
er við liægri hönd Guðs, hann sem einnig hiður fyrir oss“.
En skýrast talar Páll postuli um guðdómlegan uppruna
Jesú Krásts, er hann segir: „Verið með sama liugarfari og
Jesús Krislur var. Hann áleit það ekki rán að vera jafn
Guði, þótt hann væri í Guðs mynd, lieldur afklæddist hann
herini, er hann tók á sig þjóns mynd og varð mönnum
líkur“. Og á öðrum stað segir liann: „Hann er ímynd hins
ósýnilega Guðs, frumhurðar allrar skepnu, enda var all
skapað í honum í himninum og á jörðunni, hið sýnilega
og hið ósýnilega.“ Það er augljóst af þessum orðum Páls,
að liann telur Jesú jafnan Guði föður, lifandi frá eilífð,
þar eð alt var gjört í honum, „allir hlutir eru skapaðir