Kirkjuritið - 01.01.1940, Page 29
Kirkjuritið. Jesús Kristur er alvaldur drottinn. 23
ast Guði mest; og vér segjum: Sál livers einstaks manns er
eins, því að vér skynjum oss sjálf sem einstaklinga; — eng-
mn talar um að vér, hver einstakur, hafi þrjár sálir, sál
skynsemi, sál tilfinningar og.sál vilja, og þó þekkjum vér
sal vora aðeins frá einhverri þessara þriggja hliða, en
jafnframt merkjum vér, að þetta þrent er í innilegu sam-
starfi og myndar sína heild, eina sál, í oss. Sé það nú svo,
að vér í hinu guðlegasta á jörð, verðum vör við einskonar
þrenningu, þar sem þó er augljós eining, þá ætti það ekki
að valda oss erfiðleikum að tala um þríeinan Guð, enda
þótt vér ekki megnum að skýra liina eilífu einingu í þrenn-
ingu guðdómsins.
2. Getur Guð, sem er kærleikurinn, krafist þess, að hans
eiginn sonur fórni sér fyrir mennina? — Ég.vil koma með
aðra spurningu, sem getur máske skýrt þetta. Getum vér
vænst þess af föður, sem elskar barnið sitt, að hann ætlist
hl þess af þvi, að það fórni sér, lífi sínu, fyrir frelsi og
heild þjóðar sinnar, eða fyrir heiðingjana, sem ekki þekkja
Guð og frelsarann? — Ef vér ætlumst til fórna af börn-
um vorum, sem éru oss af hjarta kær, þá er engin fjar-
stæða, að vér hugsun oss að Guð, liinn kærleiksriki og
goði, ætlist til þess af syni sínum, og það einkum þegar
þeir eru að eilifu eitt. Það er hann sjálfur, hinn eilífi Guð,
sem tekur fórnina á sjálfan sig; — en þessi fórn var
„blóðfórn“ og meira en það, hún var fórn hinnar eilífu
sælu og himneska friðar, því að hér var Krists freistað á
allan hátt, enda þótt liann aldrei drýgði svnd og.engin
svik væru fundin í munni hans. Öll saga vor manna og
dýra á jörð er ein mikil, samfeld fórnarsaga, lífi og kröft-
um er fórnað án afláts fyrir aðra,svo að það að teljafórnar-
hugmynd kirkjunnar heiðinglega heimsku, eins og liefir
att sér stað, er aðeins vottur um hugsanasljóleika þess,
sem heldur slíku fram. Kærleikur og fórnir eru óað-
skiljanlegt; þar sem engin fórn er fram bori.n, þar er eng-
inn kærleikur, þar er ekkert raunverulegt lif, þar er hinn
eilífi dauði.