Kirkjuritið - 01.10.1940, Qupperneq 8

Kirkjuritið - 01.10.1940, Qupperneq 8
288 Bjarni Jónsson: Október. Á þenna hátt fluttu þeir boðskap frá Guði, því að í Kristi opinberaðist Guð. Þenna boðskap finnum vér í Nýja testamentinu. Nýja testamentið er játning liins krislna safnaðar. Ef vér viljum losna við játningu, verðum vér að losna við Nýja testamentið, því að Nýja testamentið er trúarjátning. Þar er trúin játuð, trúin á Jesúm Krist. Ef vér viljum losna við trúarsetningar. verðum vér að strika út mörg versin úr Nýja-testamentinu. Þar eru trúarsetningar, ekki dauður bókstafur, en orðin eru fylt lífi. Fyrir lærisveinum Krists er þetta alt nýtt og lifandi í dag. Það er eins og það sé ritað nú, handa mér i dag. Það er eins og blekið sé ekki enn þornað. Hér er hið opinberaða Guðs orð, sem kristin kirkja hvílir á. Þannig var það þái. Þannig er það nú. Postularnir og binir fyrstu vottar fluttu mönnunum boðskap, kenninguna um Krist. IJvar sem þeir komu, boð- uðu þeir Krist. Orðið um Jesúm Krist skapaði söfnuð. Söfnuðurinn styrktist við boðun orðsins og endurnærðist af sakramentunum. Þessir menn trúðu, þessvegna töluðu þeir. Þeir fylgdu ákveðinni kenningu, en kenningin var fylt Iífi. Hér sást það líf, sá sigur, sem fylgir sönnun anda og kraftar. Með þessu náði kristin kirkja útbreiðslu. Það voru ekki orðin tóm, er því var lýst yfir, að kirkjan væri samfélag Iieilagra, þar sem orðið væri rétt prédikað og sakra- mentin böfð um bönd á réttan bátt. Það sást, hvað kirkjan var. Hún bar nafn með réttu. Ekklesía, kirkja, það er samfélag þeirra, sem ganga fram, er á þá er kallað. Það er kallað á þá fram fyrir fylking- arríar. Þeir eru kallaðir, þeir blýða, og ganga undir merki foringjans, sem kallar á þá með nafni. Það skal vera öll- um ljóst, bverjum þeir fylgja. Þeir fylgja drotni, og kann- ast við hann fyrir mönnunum. Þannig var stríðskirkjan á öllum öldum. Þannig á bún að vera í dag. Hún á að vera ekklesía. Það er kallað á

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.