Kirkjuritið - 01.10.1940, Blaðsíða 26
306
Sigurgeir Sigurðsson:
Október.
efni. Hér munu rísa upp fagrar kirkjur, áður en langt um
líður: Kirkja í Laugarnesprestakalli. Þar eru þegar í sjóði
jTfir kr. 30.000.00 og margir álmgamenn, sem ekki munu
skiljast við það mál fyr en það er til lykta leitt. Söfnuð-
urinn mun standa óskiftur um það. Kirkja í Nespresta-
kalli. Þar mun fljótt hefjast starf í sömu átt, og nokkurn
styrk mun sá söfnuður þegar fá í eignum þeim (jörðun-
um Bakka og Bygggarði), er ætlast er til að til lians gangi.
Kirkja á Skólavörðuhæð — veglegasta og glæsilegasta
kirkja þessa lands. Þar eru þegar í sjóði yfir 60.000.00 kr.
1 fyrra vor afhenti ónefndur borgari þessa bæjar mér
skuldabréf að upphæð kr. 25.000.00, sem afborgast á næstu
23 árum, sem gjöf, lil þess að kaupa fyrir orgel í fyrir-
hugaða kirkju á Skólavörðuhæð. Er kirkjunni þannig nú
þegar trygt liið vandaðasta liljóðfæri. Ég efast ekki um.
að margir hér í þessum bæ muni fara að dæmi þessa stór-
huga manns og annara þeirra, er þegar hafa gefið til kirkj-
unnar.
Öll fá hin'nýju prestaköll nokkurn fjárstyrk, er fram
líða stundir, frá hinu opinbera. Samkvæml lögum þeim,
er ég áður hefi nefnt, eiga kr. 300.000.00 að ganga til nýrra
kirkjubygginga í Reykjavík. Ríkið hafði, sem eigandi Dóm-
kirkjunnar, þá skvldukvöð á sér hvílandi að byggja kirkju
við hæfi Reykvíkinga. Þessar kr. 300.000.00, sem ég mintist
á og eiga að greiðast á næslu 35 árum, ganga því sem álag
á Dómkirkjuna til byggingar nýrra kirkna hér í bænum;
fyrst kr. 100.000.00 til kirkjunnar á Skólavörðuhæð, en
síðan skiftast kr. 200.000.00 milli þriggja hinna nýju presta-
kalla. Ætti þetta að vera hinum nýju söfnuðum livöt til
þess að hefjast nú lianda um mikið starf fyrir kirkju-
byggingarhugsjónina.
Bygging Skólavörðukirkjunnar ætti að verða luigsjón
ekki aðeins Reykvíkinga, heldur allra íslendinga. Vér
þurfum að eiga að minsta kosti eina stóra, veglega, fagra
kirkju. Fögur kirkja er út af fyrir sig áhrifarík prédikun
og á mátt til þess að hefja lijörtun hærra til Guðs.