Kirkjuritið - 01.10.1940, Blaðsíða 9
Kirkjuritið.
Hlutverk nútímakirkjunnar.
289
oss, sem viljum fylgja drotni. Þorum vér að ganga fram,
eða ætlum vér að fela oss bak við fylkingar heimsins?
Nei, hlýðum með gleði, þegar á oss er kallað.
En þá vaknar hjá oss sú þrá, að kalla á aðra. Þá vakn-
ar starfsþrá kirkjunnar.
Hvernig á að kalla á aðra? Með því að boða Guðs orð.
Með því að vitna um Krist.
Páll postuli lýsir hlutverkinu og starfsaðferðinni á þenna
hátt: „Ekki prédikum vér sjálfa oss, heldur Krist Jesúm
sem drottin, en sjálfa oss sem þjóna yðar, vegna Jesú“
(2. Kor. 4, 5).
Þetta er hlutverk kirkjunnar nú. Það er hið mikla mein
heimsins, að mennirnir prédika sjálfa sig. Ágæti mannsins
er vegsamað, og maðurinn kemur fram eins og hann væri
Guð. Orð Guðs er látið hverfa. En samt spyrja margir eftir
Guði. Það stígur andvarp upp frá þessari jörð, frá mönn-
um í margvíslegri neyð.
Fá þeir svar? Þeir eiga að fá svar frá kirkjunni. Veit
kirkjan Iilutverk sitt? Fá menn hjá kirkjunni þann boð-
skap, sem þeir eiga að fá? Vér eigum að prédika Jesúm
Krist sem drottin. Gerum vér það? Vér eigum að vera
þjónar meðal mannanna vegna Jesú. Erum vér það?
Vér erum sendir með þann hoðskap, sem er svar við
spurningum mannanna. En eru ekki spurningarnar altaf
hinar sömu? Er ekki þessi spurning enn í brjóstum og á
vörum mannanna, eins og á hinni fyrstu hvítasunnuhátíð
kirkjunnar: Hvað eigum vér að gjöra?
Hverju var þeim svarað? „Gjörið iðrun“. Gefum vér í
dag mönnunum þetta skýra svar?
1 Postulasögunui er sagt frá manni, sem spurði: „Hvað
á ég að gjöra, til þess að ég verði hólpinn?“ Honum var
svarað: „Trú þú á drottin Jesúm, og þú munt verða liólp-
inn“.
Þetta svar gefur kirkjan. Þeir, sem taka við því með
gleði, játa, að þeim nægi þetta svar. Þegar ég kem i kirkju,
hlusta ég eftir þessum boðskap. Ég veit, að það er fróð-