Kirkjuritið - 01.10.1940, Blaðsíða 11

Kirkjuritið - 01.10.1940, Blaðsíða 11
Kirkjuritið. Hlutverk nútímakirkjunnar. 291 Guðs, þarf ég að heyra skýrctn vitnisburð, svo að ég viti, livar lijáip er að fá. Kirkjunni er fengið það umboð, að gefa mönnum skýrt svar. Þjónar Guðs eiga að tala með djörfung, og hin sanna djörfung á ekkert skylt við hrottaskap. Kirkjan á að hafa andlit. Það eru margir menn, sem hafa svo skýra andlitsdrætti, að það er auðvelt að muna, hvernig þeir líta út, þó að vér höfum ekki séð þá um nokkurt árabil. Vér munum svip þeirra, sjáum fyrir oss andlit þeirra. Það eru aðrir, sem erfitt er að koma fyrir sig, og vér mætum mönnum, sem eru ekki upplitsdjarfir, þeir líta undan og eru flótta- legir á svipinn. Kirkjan má ekki líta undan. Menn eiga að geta vitað, hvernig hún lítur út. Þar á ekki að vera flóttalegur svipur. Þessu mega þjónar kirkjunnar ekki gleyma. Þeir eiga ekki að sýna liörkusvip, svo að menn hræðist, en þeir eiga að hafa hreinan svip, svo að menn treysti þeim. Þeir eiga ekki að fara í felur með sannfæring sína. Á 4. öld var Basileos biskup í Kesareu. Landstjórinn kall- aði liann fyrir sig og krafðist þess, að hann drægi úr hinni kristnu játningu. Basileos neitaði slikri' kröfu með lmg- prýði og einurð. Kvaðst landstjórinn aldrei hafa heyrt, að nokkur maður dirfðist að svara sér þannig. Svaraði þá Basileos: „Þá hefir þú aldrei talað við biskup“. Þannig á hin kristna einurð að vera. Höldum fast við játn- ingu vora. Prédikum sannindi trúarinnar, og verum reiðu- búnir að útskýra fyrir öðrum liin heilögu sannindi. Kom- nm til mannanna með Guðs orð. Þá eigum vér erindi til þeirra í gleði og sorg. Vér hugsum um hlutverk kirkjunnar. Hugsum einnig um sérréttindin, sem oss eru gefin. Hvílík sérréttindi. Hví- iíkt akurlendi. Að mega vera öðrum til blessunar, að mega flytja mönnunum boð frá Guði, frá morgunstund æfinnar fram að kvöldstundunum. Það er mikið starf, sem oss er falið, er vér höfum það lmgfast, að til þess er ætlast, að

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.