Kirkjuritið - 01.10.1940, Síða 29
Kirkjuritið.
Kirkjumál Reykjavíkur.
309
Oss kemur öllum saman um, að þessir tímar, sem vér
lifum á, séu alvarlegir og hættulegir tímar. Oss kemur
öllum saman um, að margar hættur umkringi oss á alla
vegu. Oss finst æskulýðurinn vera í hættu og óróleiki og
kvíði um eitthvað óvænt hefir gripið hugi svo fjölda
margra. Væri oss ekki liolt og gott að sameina nú hugi og
hendur um sameiginlegt, göfugt verkefni, sameiginlega háa
hugsjón.
Kirkjan er mál vor allra.
Kirkjan — Kristur einn getur bægt burtu sortanum,
sem hvílir yfir þessari vansælu veröld.
Sigurgeir Sigurðsson.
Séra Jakob Jónsson
prestur í Wynyard í Sask. Kanada, kom liingað til lands alkom-
inn með fjölskyldu sinni 16. ág., eftir tæpra sex ára dvöl í
Vesturheimi. Landar vestra héldu honum samsæti að skilnaði
og leystu hann úl með gjöfum.
Ræður séra Valdimars Briem.
Barnabörn séra Valdimars Briem, Jóhann listmálari í Reykja-
vík, Ólafur kennari á Laugarvatni og Ólöf húsfreyja á Stóra-Núpi,
hafa gefið guðfræðideild Háskólans safn af ræðum afa síns.
Fyrirbæn fyrir framliðnum mönnum.
Ritdeila liefir staðið undanfarið um skeið milli þeirra séra
Jóns Auðuns og Ólafs Ólafssonar kristniboða út af því, hvort
leyfilegt sé að biðja fyrir látnum mönnum, eða ekki. Er næsta
furðulegt, að um ])að skuli vera nokluir ágreiningur með góðum,
kristnum mönnum. í þessu sambandi má minna á fyrirbæn Páls
postula í 2. bréfi lians til Tímóteusar.
Biskup landsins, Sigurgeir Sigurðsson,
átti fimtugsafmæli 3. ág. Hann var þá á Eskifirði á yfirreið um
Austfirði. Barst honum um daginn margur votlur um vinsældir
þær og virðingu, er hann nýlur.