Kirkjuritið - 01.10.1940, Page 34

Kirkjuritið - 01.10.1940, Page 34
314 J. P.: Kirkjan í Skóginum. Október. sem ómálga börn í örniuin kærleiksríkrar móður og eru umvafðir bænum hennar. Kanske heyra þeir hann í gný brims og storma um skammdegisnætur við nyrztu böf — eða í mildu bjali andvarans í laufguðu birkikjarri. Kanske sjá þeir bann í gliti fallandi sólar, þegar þeir á sumarkvöldi eru einir upp lil fjalla. Eða í stirndum vetrarhimninum með blikandi norðurljósum. Hvílík lotning fyrir binu mikla albeims afli hefir ekki gripið skáldið Einar Benediktsson við slika sýn, þeg- ar liann orkti kvæði sitt „Norðurljós“. Innan reynslutakmarka livers manns liggur nærvera okkar hulda verndarkrafts. Jóhannes Pálmason. Aðalfundur „Hallgrímsdeildar“ 1940. Aðalfundur „HallgrimsdeildaP' 1940 var haldinn að Borg á Mýrum laugardaginn 31. óg. Mættir voru á fundinum 11 deild- armenn. Eftir að formaður deildarinnar hafði gefið skýrslu um s’cörf deildarstjórnarinnar á árinu, liófusl umræður um lijálpar- meffnl presta viö ræðugerð, og hafði séra Björn Magnússon á Borg framsögu. Umræður urðu allmiklar, og voru að þeim lokniun samþykt tilmæli til stjórnar Prestafélags íslands þess efnis, að hún léti safna í eina heild þeim skrám eða tilvitnunum til lijálp- argagna við ræðugerð, sem til kunna að vera, með það fyrir augum, að safnið verði síðan endurskoðað og samræmt og cf fært þykir gefið út til afnota fyrir íslenzka presta. f sambandi við fundinn voru fluttar guðsþjónustur af deildar- prestum, bæði í Borgarnesi á laugardagskvöld og í öllum kirkj- um í Hestþingaprestakalli á sunnudaginn, en fyrirlestrar voru fluttir í Borgarnesi og Lundi í Reykjadal syðra. Fundurinn lauk störfum á Hvanneyri á sunnudagskvöldið. Björn Magnússon.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.