Kirkjuritið - 01.10.1940, Side 35

Kirkjuritið - 01.10.1940, Side 35
Kirkjuritið. Kirkjuvígslur í sumar. Á þessu sumri hafa fjórar kirkjur verið vígðar, þrátt fyrir alla byggingarerfiðleika. Eru kirkjurnar allar hinar prýðilegustu, hœði að útliti og öllum frágangi og hefir hvarvetna ríkt áhugi um byggingu þeirra. Fyrsta kirkjan, sem vígð var, er Tjarnarkirkja ú Vatnsnesi. Hún er 19 álnir á lengd og 8 álnir á breidd, innanmáls. Vegg- hæð hennar er rúmar 4 álnir og 5% efst í hvelfingu. Turnhæð 8 álnir og með krossmarki um 14 álnir. í sæti tekur kirkjan 72, auk þeirra, sem í kór geta staðið, en alls mun kirkjan geta rúm- að um 150 manns. Húsameistari Guðjón Samúelsson gerði upp- d.ráttinn að kirkjunni. Hún er í hvolfbogastil að mestu leyti, stein- steypt og hið vandaðasta liús. Altari, prédikunarstóll og kirlcju- bekkir er alt nýtt, gert eftir fyrirsögn húsameistara. Segja má, að kirkjan hafi verið í smíðum i 10 ár. Er það sízt undarlegt, er tillit er tekið til þess, að gjaldendur í sókninni munu ekki hafa verið nema 65, að meðaltali, á þessum árum, en lcirkj- an kostar alls um kr. 18.000.00. Þegar sú uppliæð er athuguð og hinsvegar íbúatala sóknarinnar, getur það ekki dulist, að kirkju- byggingin er mikið afrelt og hið mesta hrósunarefni Tjarnar- söfnuði, sem ávalt hefir liorft á og stefnt á markið, þar til því var náð. Þegar kirkjusmíðin hófst átti kirkjan aðeins kr. 1200.00 í reiðu fé. Hitt hefir komið með niðurjöfnun, er sóknarbúar hafa lagt á sig og vinnugjöfum, nokkrum styrk frá liinu opin- bera, happdrætti o. s. frv. Mun söfnuðurinn skulda nálægt kr. 7000.00, er kirkjusmíðinni er tokið, og getur það ekki talist mikið, þegar þess er gætt, livað verkið liefir kostað. Sóknarnefndina skipa: Helgi bóndi Thorlacius á Tjörn, Loftur Jósefsson bóndi að Ásbjarnarstöðum og Guðmundur Jóhannes- son bóndi að Þorgrímsstöðum, en þegar verkið hófst, var Guð- mundur bóndi Arason á Illugastöðum formaður nefndarinnar. Aðalmaðurinn, sem unnið hefir að smíðinni og séð um hana frá fyrstu, er Sæmundur Skarphéðinsson, trésmíðameistari á Hvannns- tanga, og ber öllum, sem kirkjuna hafa séð, saman um, að hann hafi unnið verk sitt bæði af hagleik og mikilli kostgæfni. Þeir, sem ásamt Sæmundi einkum hafa unnið að verkinu liin síðari ár, eru þeir Björn Benediktsson, trésmiður úr Hafnarfirði, Sig-

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.