Kirkjuritið - 01.10.1940, Síða 40

Kirkjuritið - 01.10.1940, Síða 40
Október. Nýtt prestafélag á Austurlandi. Þann 13. ágúst s.l. var á Ketilstöðum á Völlum stofnað Presta- félag Austurlands, er nær yfir Norður- og Suður-Múlaprófasts- dæmi. Stofnfundinn sátu 9 af 12 prestum prófastsdæmanna ásamt biskupi landsins, herra Sigurgeir Sigurðssyni, er þá var á yfir- reið um Austurland, og beitti sér fyrir stofnun félagsins. Félag þetta er deild i Prestafélagi íslands og vill starfa í náinni sam- vinnu við stjórn þess. Stefna þess og markmið er, samkvæmt hinum samþyktu félagslögum, þessi: a Að auka kynningu og samvinnu austlenzkra presta, glæða áhuga þeirra á öllu því, er að starfi þeirra lýtur, og efla í hvívetna hag þeirra og sóma. h Að stuðla að auknu kristilegu starfi innan safnaðanna, s. s. með stofnun æskulýðsfélaga, safnaðarfélaga og sunnudaga- skóla. Ennfremur að vinna að því, að vaxandi trúarlegra upp- eldisáhrifa gæti á nemendur í barna-, unglinga- og alþýðu- skólunum á félagssvæðinu, og vill leita samvinnu og samstarfs við stjórnendur skólanna í þeim efnum. c Að ræða andleg og kirkjuleg mál, og beita sér fyrir aukinni almennri fræðslu á þeim sviðum. d Að vinna að menningar og líknarmálum, bindindismálum, og yfirleitt hverju því, er horfir til aukinnar andlegrar og líkamlegrar heilbrigði, og þroska þjóðarinnar. Stofnendur félagsins, þeir er stofnfund sátu, voru þessir: Pró- fastarnir séra Stefán Björnsson, Eskifirði, og séra Jakob Einars- son, Hofi í Vopnafirði, og prestarnir: Séra Pétur T. Oddsson, Djúpavogi, séra Vigfús Þórðarson, Eydölum, séra Sveinn Víkingur, Seyðisfirði, séra Vigfús I. Sigurðsson, Desjarmýri, séra Hólm- grímur Jósefsson, Skeggjastöðum, séra Sigurjón Jónsson, Kirkju- bæ og séra Pétur Magnússon, Vallanesi. Þrír prestar i Suður- Múlaprófastsdæmi gátu ekki mætt á fundinum vegna forfalla, en hafa óskað að verða skráðir meðal stofnendanna, en það eru séra Haraldur Jónasson, Kolfreyjustað, séra Þorgeir Jónsson, Norð- firði og séra Haraldur Þórarinsson, Mjóafirði. Ennfremur er meðal stofnendanna skólastjóri Eiðaskólans, Þórarinn Þórarinsson cand. theoi. Stjórn félagsins skipa nú: Séra Sveinn Víkingur, Seyðisfirði, formaður, og meðstjórn- endur prófastarnir séra Stefán Björnsson og séra Jakob Ein- arsson.

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.