Kirkjuritið - 01.10.1940, Síða 42
322
Innlendar fréttir.
Október.
Prestafundur á Húsavík.
Prestarnir í Suður-Múlaprófastsdæmi héldu fund 14.—15. ágúst
á heimili prófastsins á Húsavik, séra Friðriks A. Friðrikssonar.
Ræddu þeir um kristindómsfræðslu barna og unglinga og gjörðu
um það mál svofeldar ályktanir:
,,1) Æskilegt er, að aukin verði kensla og æfingar i barna-
spurningum í guðfræðideild Háskóla íslands, og að i sambandi
við þær fari fram kensla i barnasálarfræði og uppeldisfræði.
2) Nauðsynlegt er, að sem flestir kennarar verði færir og fúsir
til kristindómskenslu í barnaskólum, með því að bæði staðhættir
og starfsskilyrði presta gera þeim víðast hvar ókleift að taka þá
fræðslu að fullu og öllu í sínar hendur, auk þess sem vafasamt
má teljast, að heppilegt sé, að fela hana „völdum sérkennuruni",
þótt þeirra væri kostur, þar sem heildarfræðsla hvers bekkjar
er í höndum eins og sama kennara.
3) Athuga her, hvort ekki sé rétt að stofna námsstjóraembætti
í kristnum fræðum. Skipi þá stöðu raaður með guðfræðilega og
uppeldisfræðilega mentun, hafi eftirlit með kristindómsfræðslu
barna og ungiinga, leiðbeini prestum og kennurum, semji eða
geri tillögur um kenslubækur og kenslutæki kristinna fræða,
jafnframt jiví scm hann gæti haft á hendi kenslu í þessari grein
i guðfræðideild og væntanlegri kennaradeild við Háskóla íslands.
4) Möguleikar eru fyrir hendi um aukna kristindómsfræðslu
og vaxandi áhrif á börn og unglinga í prófastsdæminu með j)ví:
a) að rækja húsvitjanir betur en nú tíðkast,
b) að hefja skipulagðar skólavitjanir,
c) að láta hinn formlega fermingarundirbúning hefjast eigi síð-
ar en um 12 ára aldur,
d) að taka j)átt í félagsskap unglinga,
e) að viðhalda sambandi við fermingarbörnin, á þann hátt sem
hentar bezt á hverjum stað (félög, heimboð, æskulýðsguðs-
þjónustur, o. s. frv.).
5) Enda þótt fundurinn taki lil umræðu ýms almenn vanda-
mál í sambandi við kristindómsfræðslu hér á landi, meðal ann-
ars miðað við hina stærri hæi, sér hann ekki ástæðu til, á þessu
stigi málsins, að iáta skoðanir sínar á þeim opinberlega í ljós.“
í lok fundarins flutti séra Árelíus Níelsson erindi i sóknar-
kirkjunni um kirkjuna og æskulýðinn. Fundurinn fór liið bezta
fram, og fylgdust ýmsir forys’tumenn Húsvíkinga með starfi hans
af miklum áhuga. Sátu þeir síðast ásamt prestunum í boði hjá
prófastshjónunum.