Kirkjuritið - 01.07.1941, Blaðsíða 4

Kirkjuritið - 01.07.1941, Blaðsíða 4
242 Þrestastefnan. Júlí. Austur- og Norðurlandi til prestastefnunnar. Enn þótti mér gott að geta gefið sem flestum prestum kost á að sjá þessa veglegu nýju kirkju, sem er veglegasta kirkjan, sem á íslandi hefir verið reist í lúterskum sið. Vona ég, að þessi tilhögun mælist vel fyrir yðar á meðal, og að prestastefnan megi verða yður ánægjuleg og blessun- arrík, að þér farið héðan með góðar endurminningar um ánægju- iegar samvistarstundir. Þegar vér skildum á síðustu prestastefnu, voruin vér á einu máii um það, að fyrir margra hluta sakir væri dimt í lofti. Vér horfðum með nokkurum ugg og kvíða fram til ókomna tíinans. Ó- friðurinn geisaði í umheiminum, land vort var hernumið og erfitt var að sjá veginn. Vér litum svo á, að ekki aðeins í ytra skilningi. iieldur einnig í innra skilningi, svifu skuggar í lofti yfir voru ást- kæra föðurlandi og þjóð. Vér báðuin Guð að vernda og vaka yfir ís- landi og bægja hættunum burtu frá oss. Þegar vér íhugum það, hvað fram liefir farið úti í heiminum, og livað margar þjóðir hafa orðið að ganga í gegn um og þola, þá eigum vér vissulega margt og mikiö að þakka. Vér höfum þó ekki, eius og öllum oss er kunnugt, komist lijá því að liljóta sár af völdum liins grimmilega liildarleiks. Þjóðin á margra dýrmætra og ástfólginna sona að sakna, og sumir þeirra létu líf sitt með sama sorglega hætti og svo margir bræður þeirra, sem um heimshöfin fóru í þjónustunui fyrir land sitt og þjóð. ís- lenzka kirkjan hefir minst þessara föllnu sona og fundið sárt til með ástvinum þeirra og reynt að milda sárin, sem eftir voru og sefa harminn. Þjóðarsorg var í landi, 'en minningarnar eiguni vér góðar um dáðrika menn, sem með hetjulund gengu á mótv dauða sínum. — Guð er trúr. Hann lét sumarsól renna upp yfir íslandi. Gróður jarðar sprettur fram í blíðu sumarsins, og í bjargræðisbaráttunni opnast enn leiðir, koma enn tækifæri, alt er það vottur um varð- veizlu Guðs vors lands og handleiðslu. En skuggarnir eru enn ekki allir flúnir. Öllum íslendinguni lcemur saman um, að vér lifum á hinum alvarlegustu tímum. Það eru ekki aðeins ytri stórfeldar hættur, sem yfir virðast vofa, sem ég á við, lieldur einnig og, ef til vill, öllu fremur margvíslegar inuri hættur, sem aldrei hafa verið meiri en nú. Það er mikil- vægt, að vér kirkjunnar menn höfum opin augu fyir þessum stað- reyndum. Það er altaf nokkur iiætta á því, að þjóðin loki augum fyrir slíkum liættum. En þó er það kirkjunnar brýna hlutverk að vaka og vinna. Sennilega verða verkefni lieilagrar kirkju með þjóðunum aldrei stærri en á ófriðartímum. Þá flæða ný óholl a- lirif og straumar inn í þjóðlífið, sem eru hugspillandi. Þetta á sér

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.