Kirkjuritið - 01.07.1941, Blaðsíða 19

Kirkjuritið - 01.07.1941, Blaðsíða 19
KirkjuritiíS. Prestastefnan. 257 SíðasliÖiS sumar visiteraði ég, eins og kunnugt er, Suður- Múlaprófastsdæmi. Það var ánægjuleg för og mér minnisstæð. Vísítazíurnar voru fjölsóttar og samstarfið við presta og söfnuði Prófastsdæmisins mjög hugljúft. í þessari ferð átti ég nokkurn bátt í, að Prestafélag Austurlands var stofnað að Ketilsstöðum á Völlum. í sumar hefi ég ráðgert að vísitera Norður-Múlaprófasts- dæmi. Hefi ég hagað þvi svo vegna þess, að til þessa hefi ég verið einna minst kunnugur á Austurlandi og starfi kirkjunn- ar þar. Kirkjuráðið hefir starfað, eins og venja er til, og haldið all- marga fundi á árinu. Það tók til meðferðar allflest mál, sem fyr- ir þessu síðasta Alþingi voru, og studdi þau eftir mætti. Hið sama er að segja um presta þá, er á Alþingi eiga sæti. Starfið hefir viða i söfnuðum landsins gengið að óskum. Virðist mér, að kirkjusóknin fari yfirleitt vaxandi, og áhugi fólks fyrir starfi kirkjunnar glæðist. Ýms mál hafa verð á döfinni, sem athygli alþjóðar liafa vakið. Má þar tii nefna kirkjumál Reykjavikur, og afrek það, sem unnið hefir verið með kirkjubyggingunni hér á Ak- ureyri. í Reykjavík er fjársöfnun hafin í öllum nýju prestaköll- unum til kirkjubygginga. í Laugarnesprestakalli er fjársöfnunin komin það langt, að ekki er vonlaust um, að þar verði hafist danda um kirkjubyggingu á þessu sumri. í Hallgrímsprestakalli starfar 30—40 manna fjársöfnunarnefnd og í Nesprestakalli 15 uianna nefnd. Kirkjusöngsveitir liafa veriö stofnaðar i öllum Prestaköllunum, og veit ég, að þar er í vændum merkilegt kirkju- legt starf. Ég tel það hiklaust kirkjulegan viðburð, að i fyrsta sinni hafa í Reykjavík verið flutt tvö af stærstu kirkjulegu tón- verkum heimsins: Sköpunin eftir Haydn og Messias eftir Handel. Éiga þeir, sem þar ruddu brautir, skyldar miklar þakkir. 1 fyrra sumar var byrjað á að reisa Hallgrímskirkju i Saur- 5æ, með því að grunnurinn var lagður. Mér er ekki að öllu leyti kunnugt um, hvað Hallgrímsnefnd ætlast fyrir, en ekki er ólík- ^egt, að nokkur dróttur verði á frekari framkvæmdum. Þó full- yrði ég ekkert um það. Við guðfræðideild Háskólans hefir verið unnið eftirtektarvert starf, er hófst með stofnun sunnudagaskóla, sem guðfræðistúdent- ar ásamt kennurum deildarinnar hafa starfað að. Sunnudaga- skólinn starfaði hvern sunnudagsmorgun eftir að hann tók til starfa við ört vaxandi aðsókn. Veiting Hallgrímsprestakalls í Reykjavikurprófastsdæmi vakti ullmikið umtal, sem kunnugt er. Afstaða mín í því máli er yður öll- Uln kunnug, og skal ég ekki fjölyrða um hana. Eru þær raddir nú að mestu liljóðnaðar, en eigi skal því neitað, að nokkurt sársaukaefni

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.