Kirkjuritið - 01.07.1941, Page 21

Kirkjuritið - 01.07.1941, Page 21
Kirkjuritið. Prestastefnaii. 259 ganga til nefndar, er skipuð var þessum prestum: Séra Friðriki J. Rafnar, séra Árna Sigurðssyni, séra Jakobi Jónssyni, séra Sigurði Pálssyni og séra Friðrik A. Friðrikssyni. Lagði nefndin svoliljóð- andi tillögur fyrir fundinn, sem allar voru samþyktar: I. „Prestastefnan ályktar, að nauðsyn beri til að gera eftirfar- andi ráðstafanir i sambandi við æskulýðsstörf kirkjunnar: a. að biskup gefi lit reglugjörð um lágmarkskröfur um ferm- ingarundirbúning, b. að biskup gangi í nefnd, ásamt 4 mönnum, sem liann kveðji til, og annist nefndin útgáfu nýrrar kenslubókar í kristnum fræðum og liraði þvi verki svo, sem verða má, c. að prestum landsins sé gert að skyldu að lialda áfram kristi- legu starfi með fermingarbörnum sínum fyrstu árin eftir ferminguna, eftir því sem unt er“. II. „Prestastefnan kýs 5 manna nefnd lil að rannsaka möguleika á aukinni útgáfustarfsemi kirkjunnar og undirbúa framkvæmdir i þá átt‘. I nefndina voru kosnir: Séra Jakob Jónsson, séra Sigurbjörn Ein- arsson, séra Árni Sigurðsson, séra Sveinbjörn Högnason og séra Jón Thorarensen. III. „Prestastefnan ályktar, að brýna nauðsyn beri til, að prestar landsins efni til skipulegrar samvinnu við lækna og lögreglu- stjóra og barnaverndarnefndir til að afstýra þeim siðferðislegu °g þjóðernislegu hættum, sem stafa af dvöl erlends setuliðs i prestaköllum þeirra. Telur prestastefnan nauðsynlegt og sjálfsagt, að kirkjustjórnin fái fjárveitingu til að standast þau útgjöld, er leiði af framkvæmd þeirra ráðstafana, er nauðsynlegar þykja í þessu efni“. IV. „Prestastefnan skorar á ríkisstjórnina að loka útsölum áfengis- verzlunar ríkisins, meðan erlent setulið er i landinu og örðug- leikar eru á aðflutningi nauðsynja til landsins“. í sambandi við aðalmál prestastefnunnar voru einnig samþyktar fftirfarandi tillögur frá einstaka prestum og biskupi: Frá séra Gunnari Árnasyni: „Prestastefnan samþykkir, að sóknarnefndirnar sjái um, að íslenzkur fáni sé í hverri kirkju fyrst um sinn.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.