Kirkjuritið - 01.07.1941, Blaðsíða 25
Kirkjuritið.
Prestastefnan.
263
Að lokinni prestastefnunni, kl. 9 á laugardagskvöldið, söfnuð-
ust synodusprestar og viðstaddar konur þeirra saman i gilda-
skála Kaupfélags Eyfirðinga í boði biskupslijónanna og áttu þar
ánægjuríka skilnaðarstund, þar sem ræður voru fluttar undir
borðum og söngvar sungnir. Sátu það boð ennfremur sóknar-
nefnd Akureyrar, Vilhjálmur Þór bankastjóri og Páll ísólfsson
dómkirkjuorganisti. Að síðustu var svo haldið upp í Akureyrar-
kirkju, þar sem biskup flutti bæn, en leikið var veikt á hljóðfæri
kirkjunnar á meðan. Var svo sálmurinn: „Son Guðs ertu með
sanni“ sunginn að skilnaði.
Sunnudaginn 29. júni prédikuðu aðkomuprestar í nokkurum ná-
lægum kirkjum, eftir því sem við var komið. Hálfdan Helgason.
Aðalfundur Prestafélags íslands
verður að öllu forfallalausu haldinn föstudaginn og laugardaginn
10. og 11. okt. í Háskólanum.
Dagskráin verður i aðalatriðum á þessa leið:
Föstud. 10. okt.
Guðsþjónusta í Háskólakapellunni.
Skýrsla félagsstjórnar. Ársreikningur.
Nefndarkosning (kirkjuþing). Umræður um
skýrslu félagsstjórnarinnar, sérstaklega um
útgáfu nýrra prestaliugvekna.
Kaffihlé.
Aukaverlc. Framsaga og umræður.
Altarissakramentið. Framsaga og umræður í
í Háskólakapeliunni. Kvöldbænir.
I.
II.
III.
IV.
V.
VI.
Kl. 10. f. li.
— 11 f. h.
— 2 e. h.
— 4—5 e. li.
— 5—7 e. h.
— 8,30 e. h.
Laugard. 11. okt.
I. Kl. 9.30 f. h.
II. — 10 f. h.
III. — 2 e. li.
IV. — 4 e. h.
V. — 5 e. h.
VI. — 6 e. h.
Morgunbænir.
Veiting prestakalla. Framsaga og umræður.
Kirkjuþing. Nefnd skilar áliti um málið. Um-
ræður.
Sameiginleg kaffidrykkja.
Mál, sem upp kunna að vera borin. Kosning
stjórnar og endurskoðenda. Fundarslit.
Guðsþjónusta með altarisgöngm
Biskupsvísitazía.
Sigurgeir Sigurðsson biskup hefir nú í þessum mánuði yfirreið
um Norður-Múlaprófastsdæmi og messar þar í öllum kirkjum.
Mun nánar sagt frá yfirreið hans í næsta hefti Kirkjúritsins.