Kirkjuritið - 01.07.1941, Qupperneq 26

Kirkjuritið - 01.07.1941, Qupperneq 26
Júlí. Sumarlandið. (Vorhug-leiðing). „í upphafi skapaði Guð himin og jörð. En jörðin var þá auð og tóm, og myrkur grúfði yfir djúpinu, og Guðs andi sveif yfir vötnunum. Þá sagði Guð: Verði Ijós! og það varð Ijós. Og Guð sá, að ljósið var gott....“ (1. Mós. 1, 4). Það er komið vor, blítt vor og undurmilt, það sem af er, eftir óvenjumildan vetur, kyrran og sólbjartan. Vér liöfum ekki farið varhluta af sólarljósinu, jafnvel með- an sólargangurinn var lágur — meðan aðdragandinn til vorsins þráða leið, vorsins, sem nú er runnið yfir oss. Nótt er nú um skeið ekki til, heldur sífeldur dagur. Hvílíkur munur eða um vetrarsólhvörf, þegar hæturnar svo að segja leggja saman, og dagurinn birtist augna- blik, eins og til að minna á, að hann hafi ekki kvatt með öllu. Hugir vorir eru ljóselskir. Oss er þá fyrst tilveran kær og við brosandi, er vér mætum meira ljósi, meiri hlýju, meiri fegurð. Vér mætum lífinu. Vér finnum streyma um oss kraft hins nýja lífs — hins nýja skapandi lífs. — Vér skerpum sjón vora, mitt í sumardýrð, betur en ella á sannleiksgildið í orðum spekingsins með Gyðingum, að myrkur og kuldi, auðn og tóm hvíldi eitt sinn yfir og umhverfis þá jörð, er nú ljómar í sól og framleiðir, í röð tímanna, hina fjölbreyttu ávöxtu lifsins, miljónum manna og málleysingja til sköpunar, viðhalds og vaxtar. Sá er tilgangur Guðs með meira ljósi. „Og Guð sá, að ljósið var gott“. Skyldum vér ekki geta tekið undir það? Skyldum vér ekki liafa reynslu fyrir

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.