Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.06.1955, Qupperneq 6

Kirkjuritið - 01.06.1955, Qupperneq 6
244 KIRKJURITIÐ hans, flokkur vaskra, ungra manna. Hann ávarpar þá og sérhvern þann, er vill taka boðskap hans: Þér eruð Ijós heimsins. Hið sarna segir hann nú við ykkur. Ég vildi óska, að þið heyrðuð hann tala og geymduð orð hans í hjarta, svo að þið lifðuð eftir þeim. Þér eruð Ijós heimsins. I því felst það, sem Kristur orðar svo öðru sinni: Gæt þess, að ljósið, sem í þér er, sé ekki myrkur. Verndið það, svo að það verði aldrei sótugt rjúkandi skar. Haldið því hreinu og tæru. Varðveitið hjartað framar öllu öðru, því að þar eru uppsprettur lífsins. Vakið yfir hreinleik þess. Sælir eru hjartahreinir, þeir, sem eiga barnslega einlægt hjarta — hjarta, er elskar það, sem er satt og fagurt og gott, ljós og líf. Það á að vera aðalsmerki ykkar allra. Til verndar því þarf bæði bæn og starf. Þið skuluð biðja og iðja. Þið sjáið, hvemig hvort tveggja fór saman í lífi Jesú. Árla löngu fyrir dögun leitaði hann út í kyrrð náttúr- unnar til þess að biðjast fyrir. Og þegar nóttin hófst eftir langan starfsdag, hvarf hann frá mannfjöldanum til bæna. Þess er jafnvel getið, að hann hafi verið alla nóttina á bæn til Guðs. Svo náið var bænarsamfélag hans við Guð, að hann sagði: Ég og faðirinn erum eitt. Þaðan kom honum þrótturinn til starfa. Og hann gekk um kring, gjörði gott og græddi alla, sem þráðu hjálp hans. Leitið bænalífs með Guði. Fylgið dæmi feðra okkar og mæðra kynslóð af kynslóð, sem hófu svo dagsverk sitt, er þau gengu út undir blæ himins blíðan, að þau signdu sig og báðu Guð að vera í verki með sér á hinum nýja degi og létu hug sinn dveljast með honum í dagsins önn. Reynsla þeirra, djúp og sönn, bendir ykkur. Eða hver er sá, sern dirfist að segja um bænir móður sinnar, að þær hafi verið blekking og hégómi. Svo er aldrei um neitt, er eykur lífinu gildi. Vinnið störf ykkar í trú á Guð með dáð og

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.