Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.06.1955, Page 16

Kirkjuritið - 01.06.1955, Page 16
254 KIRK J URITIÐ að notast við gömlu kirkjuna, meðan verið var að reisa hina nýju. Skal nú reynt með sem fæstum orðum að segja sögu þessarar kirkju, eftir þeim heimildum, skráðum og óskráðum, sem ég hefi yfir að ráða. Um 1750 réð stjórnin það af, að láta reisa Landakirkju þá úr steini, sem nú er, en framkvæmdir urðu litlar, þó telur dr. Jón Þorkelsson, að stöpull hennar hafi verið settur í hana 1757 (sbr. Tyrkjaránssögu, bls. xxxv). Mun það ef til vill vera sama og hornsteinn hafi verið lagður að henni, þ. e. fyrsti steinninn, sem lagður var. Teikningu að þessari kirkju mun hafa gert Nicolaj Eigtved, sá sem stóð fyrir byggingu Ama- lienborgar í Kaupmannahöfn. — Lengra virðist byggingunni ekki hafa miðað áfram að þessu sinni. Nicolaj Eigtved andað- ist 1754 eða 20 árum áður en byrjað var fyrir alvöru á bygg- ingu þeirri, steinkirkjunni, sem nú stendur hér. í skjölum, sem bárust til íslands frá Danmörku 1928 og geymd eru í Þjóðskjalasafninu, komu fram ýmsar upplýsingar um byggingu Landakirkju þeirrar, sem hér um ræðir. Konung- legur byggingameistari, að nafni Georg David Anthon (f. 1714, d. 1781), sem gert hafði ýmsar teikningar fyrir stjórnina af húsum hér á landi, t. d. stjórnarráðshúsinu, var falið að gera teikningu af kirkjunni, gera kostnaðaráætlun og að ráða mann til að standa fyrir byggingunni. Uppdráttinn gerði hann og kostnaðaráætlun jafnhliða. Hann áætlaði, að kostnaðurinn við bygginguna mundi verða 2735 ríkisdalir, en kostnaðurinn reynd- ist 5147 ríkisdalir 69y2 skildingur. Það er því ekki ný bóla hér á landi, þótt kostnaður við ýmsar byggingar fari fram úr því, sem upphaflega var áætlað. — Allur kostnaður við bygg' inguna var greiddur úr ríkissjóði. Steinsmið réði hann, en af misgáningi réði hann hann Kristó- fer Bergar, þýzkan steinsmið, til að standa fyrir smiði kirkj- unnar, en átti að ráða bróður hans, Johan Georg Berger, sem hafði verið hér á landi við múrsmíðar. Samningurinn var gerður 21. maí 1774 og samþykktur af rentukammerinu 25. mai s. á. Samkvæmt samningnum átti Berger að byggja „Grund Muuret Kirke“ 27J/2 alin langa og 16 álna breiða. Til kirkj- unnar voru auk timburs og áhalda: 1 vagn, 6 hjólbörur, 4 handbörur, 1 sleði og aktygi á 4 hesta, sendir ellefu þúsund Flensborgar-múrsteinar og 900 tunnur af kalki. Það af efninu,

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.