Kirkjuritið - 01.06.1955, Síða 21
KIRKJRUNAR í VESTMANNAEYJUM 259
afi Jóns biskups Vídalíns, og séra Brynjólfur Jónsson, sem var
Prestur á Ofanleiti frá 1852—1884 (dáinn 19. nóv. 1884), þar
af 6 ár aðstoðarprestur hjá séra Jóni Austmann. Allt starf
séra Brynjólfs Jónssonar hér var óslitið siðmenningar- og sið-
fágunarstarf í þarfir Eyjabúa, bæði hinna eldri og yngri.
Ritað í apríl 1948.
*
Ásólfsskálakirkja undir Eyjafjöllum vígð.
Sunnudaginn 22. maí fór fram vígsla nýrrar kirkju að Ás-
ólfsskála undir Eyjaf jöllum. Biskup íslands, dr. Ásmundur Guð-
roundsson, framkvæmdi vígsluna. Hófst athöfnin með því, að
prestsvígðir menn gengu til kirkju með biskup í fararbroddi
og báru hina helgu gripi kirkjunnar, sem þeir afhentu biskupi
fyrir altari. Er biskup hafði flutt vígsluræðu og lýst vígslu
kirkjunnar, steig sóknarpresturinn, séra Sigurður Einarsson, í
stólinn og flutti prédikun. í lok guðsþjónustunnar flutti for-
niaður sóknarnefndarinnar, Þórður Tómasson rithöfundur,
vallnatúni, ræðu, þar sem hann rakti sögu kirkjubyggingar-
innar í stórum dráttum.
Hefir söfnuðurinn sýnt mikinn áhuga og fórnarlund við
kirkjusmíði þessa. Má nefna, að alls munu hafa verið gefnar
uni 7000 vinnustundir við hana. Alls kostar kirkjan uppkomin
Urn 300 þús. kr. Þarf mikið átak fyrir fámennan söfnuð að
koma upp þessari kirkju. Alls munu safnaðarmenn vera tæp
200. Kirkjan er steinsteypt og tekur um 200 manns.
Kirkjusmiður var Sigurjón Magnússon, Hvammi.
Eftir að vígsluathöfninni var lokið, sátu allir kirkjugestir,
sem því gátu við komið, hóf í boði sóknarnefndar í samkomu-
húsinu að Heimalandi. Voru þar fluttar margar ræður og
avörp og þakkir færðar þeim mönnum, sem mest og bezt hafa
unnið að framgangi kirkjubyggingarmálsins. Sátu menn þar í
góðum fagnaði til kvölds.