Kirkjuritið - 01.06.1955, Síða 29
Nýtt orgel í Hallgrímskirkju.
Kvenfélag Hallgrímskirkju hefir gefið kirkjunni vandað
Pípuorgel. Félagið hefir með því unnið þrekvirki. Þetta mun
Vera stærsta, en alls ekki fyrsta gjöfin, sem félagið gefur
kirkjunni. Með sinn ötula formann, frú Guðrúnu Ryden, í
broddi fylkingar virðist það geta yfirstigið alla erfiðleika.
Nokkru eftir að sá hluti kirkjunnar, sem búið er að byggja,
Var fullgerður, ákvað félagið að gefa kirkjunni þessa gjöf. í
orgelnefnd félagsins störfuðu frú Anna Bjarnadóttir og frú
Astríður Thorarensen, ásamt organista kirkjunnar, Páli Hall-
dórssyni. Létu þær sér einkar annt um, að keypt yrði til kirkj-
unnar það vandaðasta og bezta orgel, sem völ væri á. Tilboða
Var leitað víðs vegar og síðan ákveðið að kaupa orgelið hjá
Rieger-verksmiðjunni í Tékkóslóvakíu, og hefir nefndin séð
Urn ka.up á orgelinu að öllu leyti. Verðið var hagkvæmt.
Orgelið kom til landsins síðastliðið sumar og var sett í
kirkjuna í júlímánuði. Það var þó ekki vígt og tekið í notkun
fyrr en í september, því að kirkjan var máluð eftir að orgelinu
hafði verið komið fyrir.