Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.06.1955, Side 34

Kirkjuritið - 01.06.1955, Side 34
272 KIRKJURITIÐ eftir hátíðarhaldið, þar á meðal stjórnarskrána, er þeir voru ekki sem bezt ánægðir með. Stóð Eggert Gunnarsson mest fyrir þessum bréfaskriftum og hélt ritara til að koma bréf- unum af stað, og er það í tilefni af þessu bréfi, sem séra Matthías skrifar Eggert. Seinna bréfið, sem er ritað daginn eftir, virðist vera til séra Björns í Laufási, en hann hefir svo sent Eggert það til ílits, vegna þess sem þar er drepið á þjóðhátíðarmálin. Athugasemdin í upphafi bréfsins er Matthíasar. Virðist hafa verið um meiri háttar brennu að ræða á skrifstofu Þjóðólfs, því að bréfið til Eggerts hefir ekki farið alveg varhluta af henni og er brunnið af því eitt hornið. Séra Björn einn mun hafa ort erfiljóð eftir séra Gunnar auk séra Matthíasar, og það hefir einnig verið séra Björn, sem gagnrýndi talsvert sálmabókarútgáfuna 1871, en að henni vann séra Stefán Thorarensen á Kálfatjörn manna mest. Ekki er þó rétt að kenna séra Stefáni um öll missmíði hennar, því að glingrað var við ýmsa sálmana, eftir að hann skilaði handritinu, af manni, sem ekki hafði til þess neina heimild, og var séra Stefán fyrstur manna til að skrifa móti bókinni sjálfur. Það er vert að veita því athygli, að það er að hvötum séra Matthíasar og beinlínis eftir tillögum hans, að sálmabókar- nefndin 1878 var skipuð. Ritaði hann ágæta grein um þetta efni í Þjóðólf 13. marz 1878, en þrem dögum seinna ritar Pétur Pétursson biskup honum, þar sem hann mælist til, að hann taki sæti í sálmabókarnefnd ásamt Steingrími Thorsteinssyni, séra Helga Hálfdanarsyni, séra Stefáni Thorarensen, séra Valdi- mar Briem, séra Birni Halldórssyni og séra Páli Jónssyni á Völlum. Benjamín Kristjánssson. Aths. í hinni miklu ritgerð dr. Jóns Helgasonar um Ilelga Hálfdanarson, sem birtist í Prestafélagsritinu 1926 á aldar- afmæli séra Helga, segir höf. neðanmáls: „Þegar séra Matthías í „Söguköflum af sjálfum mér“ eignar sér frumkvæðið að þeirri nefndarsetningu (þ. e. sálmabókar- nefndinni 1878), þá er það á misminni byggt. Ég veit með áreið- anlegri vissu, að hann átti það ekki, heldur Magnús Andrésson (síðar prestur að Gilsbakka), sem þá var biskupsritari, mikill

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.