Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.06.1955, Síða 37

Kirkjuritið - 01.06.1955, Síða 37
TVÖ BRÉF FRÁ MATTHÍASI 275 til þings að kjósa og á þingi að sitja og fyrir landstjórn og iögum að ráða. Fyrst liggur á þjóöhátíöinni, þar næst á þing- kosningum (— þó með varlegum agitationum, þær spenna vondu kraftana, bezt með því að sannfæra menn um vanda og ábyrgö). Þar næst liggur á öllu framfaralífi í landi þessu, að menn fáist til að vinna samhuga um allt land í sömu stefnu: koma upp gufu- og vöruskipum, einkum kringum landið, koma upp alþýðuskólum (barna og unglinga), koma á föstum kaup- °g búnaðar(verðtaxta) i. Við megum ekki œsa heldur (jafna málin) i. Skiptum okkur ekkert að svo stöddu af minni háttar Pólitískum vandkvæðum, sláum okkar reservationum föstum, tökum þær skýrt fram, en geymum stappið. Máske þessi breyt- ingatími vinni þar fyrir okkur, en hér verðum við að hjálpa okkur sjálfir, ella hjálpar oss enginn. Pólitiserum sem minnst i sumar, en vel það litla (— betur en í fyrra, sem varð, eins °g eg sagði fyrir, til skammar). Nú ríður oss á að halda virð- ingunni. Nú horfa allir á oss og slá föstum okkar einkennum eins og þau sýna sig í sumar. Líklegt er, að þið gefið lítið fyrir mína pólitík, en þess vil eg biðja þig og aðra beztu drengi íslands, að fara með spekt og hyggni í sumar, því að illt þætti mér að neyðast til að þurfa að skrifa í móti slíkum ágætis- mönnurn og brennandi framfaramönnum sem þú og Björn Prófastur og ykkar líkar eru. Þjóðólfur verður víst smár í mínum höndum, en þótt mig vanti marga kosti, getur mér ekki betur fundizt en eg hafi vitsmuni á við flesta aðra, sem nú skrifa í blöð vor, og hvað drengskap minn snertir gagnvart sannleikanum, skal enginn kraftur dirfast að gefa mér hnútur. Um laun eða lof kæri eg mig ekki. Vei þeim manni, sem er andlegur aumingi og þekkir annað æðra en einn Guö og eina skynsemi, og þar með basta! Og fyrirgefðu nú eins og eg skyldi (ef þyrfti) fyrirgefa þér, tninn ágæti bróðir, og Drottinn styrki hvert þitt spor. Ó, hvað eg trega Gunnar, eg, sem fátt lengur trega. Kysstu elskuna hans brennandi kossi frá mér, og móður hans, hina blessuöu konu. Við megum til að halda fundinn 3. ágúst. Sigfús situr og öollaleggur samstundis ljómandi innréttingar, en sem þurfa 1 Þessi orð innan sviga eru tilgáta. Bréfið er brunnið á þessum stað.

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.