Kirkjuritið - 01.06.1955, Side 44
282
KERKJURITIÐ
æskumenn sína á vígvöllinn, ef stríð brýzt út. Við íslendingar
höfum engin slík útgjöld, og þurfum enga æskumenn að senda
á vígvöll. Væri þá ekki vel til fallið, að við verðum þeim mun
ríkulegri fjárupphæðum til kristniboðs, og sendum her, „stríðs-
menn Krists“, til að vinna honum lönd og ríki. Vill ekki öll
íslenzka þjóðin sameinast um svo göfugt „stríð“? Vissulega
væri þess þörf, bæði okkar sjálfra vegna og þeirra, sem í
myrkrunum sitja og þrá ljós fagnaðarerindisins.
Stefán Kr. Vigfússon, Arnarhóli.
Samkoma á Hofsósi.
Sunnudaginn 8. maí s.l. var skemmtun haldin að Hofsósi á
vegum kirkjubyggingarsjóðs Hofsósskirkju. Kirkjukór Sauðár-
króks undir stjórn Eyþórs Stefánssonar tónskálds kom í heim-
sókn. Samkoman hófst með sameiginlegri kaffidrykkju í Barna-
skólanum, en konur úr kirkjukór Hofsóssóknar sáu um veit-
ingar. Þar töluðu undir borðum settur sóknarprestur, séra Árni
Sigurðsson, er bauð gesti velkomna, prófasturinn, séra Helgi
Konráðsson, söngstjórinn Eyþór Stefánsson, Kristján Ágústsson
formaður sóknarnefndar Hofssóknar, Jóhann Eiríksson gjald-
keri kirkjunnar, Sigurður P. Jónsson formaður Kirkjukórs
Sauðárkróks, er þakkaði móttökurnar fyrir hönd kórsins, Guð-
jón Sigurðsson, Björn Jónsson hreppstjóri, Bæ, og frú Pála
Pálsdóttir. Síðan hófst skemmtunin með ávarpi, er séra Árm
Sigurðsson flutti. Að því loknu söng Kirkjukór Sauðárkróks
nokkur lög með undirleik frú Sigríðar Auðuns, og að lokum
voru tvær kirkjulegar kvikmyndir sýndar. Skemmtunin var hin
fjölsóttasta. Kom fólk alls staðar að úr nærsveitum Hofsóss.
Síðar um kvöldið var haldinn dansleikur í samkomuhúsinu a
vegum kirkjubyggingarsjóðsins. Þótti koma Kirkjukórs Sauðar-
króks mikill viðburður og marka tímamót í söngstarfsemi
beggja kirkjukóranna. Áður en kirkjukórinn hélt heimleiðis, af-
henti formaður hans sóknarnefnd Hofsóssóknar kr. 600.00 að
gjöf til kirkjubyggingarinnar, sem nú er í smíðum. Þökkuðu
sóknarpresturinn og formaður sóknarnefndar gjöfina og hina
ágætu heimsókn kórsins. Ríkir hinn mesti áhugi innan sóknar-
innar á því að ljúka kirkjubyggingunni sem fyrst. Á. S.