Kirkjuritið - 01.08.1955, Blaðsíða 24
310
KIRKJURITIÐ
uði við Háskólann hér. Lauk embættisprófi í guðfræði vorið
1954.
Séra Sigurður Haukur Guðjónsson, er vígður var til Háls-
prestakalls í Suður-Þingeyjarprófastsdæmi 5. júní. Hann er
fæddur í Hafnarfirði 25. október 1927. Foreldrar: Guðjón A-
Sigurðsson, bóndi að Gufudal í Ölfusi, og Þórunn Guðmunds-
dóttir, kona hans. Hann lauk stúdentsprófi í Reykjavík vorið
1950 og embættisprófi í guðfræði í janúar 1954. Hann er
kvæntur Kristínu S. Gunnlaugsdóttur úr Reykjavík.
Séra Þorleifur Kjartan Kristmundsson, er vígður var til Kol-
freyjustaðarprestakalls í Suður-Múlaprófastsdæmi 5. þ. m. Hann
er fæddur í Reykjavík 12. júní 1925. Foreldrar: Kristmundur
B. Þorleifsson gullSmiður og kona hans, Guðrún S. Kjartans-
dóttir. Hann lauk stúdentsprófi í Reykjavík vorið 1945. Stund-
aði guðfræðinám 1952—1955. Lauk þá í janúarmánuði embættis-
prófi í guðfræði. Hann er kvæntur Þórhildi Gísladóttur úr
Garðinum í Gerðahreppi.
Þessi nýju presta býð ég hjartanlega velkomna til starfa
fyrir kirkjuna og bið þeim blessunar Guðs. Náð hans og máttur
fylgi þeim í lífi þeirra, svo að þeir þjóni honum í verki og
sannleika.
Enn hafa þessir prestar fengið veitingu fyrir prestaköllum:
Séra Kristján Róbertsson fyrir Akureyrarprestakalli í Eyja-
fjarðarprófastsdæmi frá 1. nóvember að telja.
Séra Rögnvaldur Finnbogason fyrir Bjarnanessprestakalli 1
Austur-Skaftafellsprófastsdæmi frá 1. desember.
Séra Ragnar Fjalar Lárusson fyrir Sigluf jarðarprestakalli i
Eyjafjarðarprófastsdæmi frá 1. febrúar.
Séra Grímur Grímsson fyrir Sauðlauksdalsprestakalli í Barða-
strandarprófastsdæmi frá 1. júní.
Séra Þórir Stephensen fyrir Staðarhólsþingum í Dalapro-
fastsdæmi frá 1. júní.
Aðrar breytingar á embættaskipun þjóðkirkjunnar hafa verið
þær, að tveir prófastar hafa verið skipaðir, séra Siguröur
Stefánsson á Möðruvöllum, í Eyjafjarðarprófastsdæmi frá 1-
nóvember að telja, og séra Gunnar Jóhannesson á Skarði, í Ár-