Kirkjuritið - 01.08.1955, Blaðsíða 28
314
KIRKJURITIÐ
háttar athafnir í söfnuðunum og halda opinbera hljómleika
og kirkjukvöld. Hefir 51 kór alls sungið opinberlega 94 sinnum
á árinu fyrir utan við messur. Síðan söngmálastjóri hóf starf
sitt, eða frá 1941, hafa þess konar söngsamkomur verið nær
1200.
Söngmót kirkjukóra hafa verið haldin 29. september á
Reyðarfirði og 11. desember að Mánagarði í Nesjum í Horna-
firði. Hið fyrra hélt Samband austfirzkra kirkjukóra, 3 kórar,
samtals um 70 manns, en hið síðara Kirkjukórasamband
Austur-Skaftafellsprófastsdæmis, 5 kórar, um 70 manns.
Auk þess má nefna kirkjumót að Prestsbakka á Síðu 15.
ágúst. Þar sungu 7 kirkjukórar. Ennfremur hafa kirkjukórar
Akraness og Borgarness haldið sameiginlega hljómleika í vetur
og vor í Borgarnesi, Akranesi og að Breiðholti í Miklaholts-
hreppi og komið til Reykjavíkur og sungið á plötur fyrir Ríkis-
útvarpið. Einnig mætti geta um ýmsa aðra menningarstarf-
semi, sem organistar og kirkjukórar annast fyrir söfnuðina,
svo sem fjársöfnun til orgelkaupa í kirkjur.
Söngskóli Þjóðkirkjunnar starfaði sömu mánuði sem fyrr,
frá 1. nóvember til 1. maí. Skólastjóri Sigurður Birkis söng-
málastjóri, aðrir kennarar Máni Sigurjónsson organleikari og
Þórarinn Jónsson tónskáld. Námsgreinar: Söngur, söngstjórn,
messusöngur, organleikur, tónfræði og tónlistarsaga.
Alls komu í skólann 30 nemendur, af þeim voru 10 guðfræði-
stúdentar, en 16 stunduðu námið til þess að verða organleikarar
í kirkjum sínum. Flestir voru þeir allan skólatímann.
Enn hafa lært hjá söngmálastjóra nokkrir af einsöngvurunum
úr kirkjukórunum og Kennaraskólanemendur.
Kirkjuorgel hafa verið keypt 8 alls, meðal annars pípuorgel
í Hallgrímskirkju og Hafnarfjarðarkirkju, bæði mjög vönduð.
Auk þess gefur séra Sigtryggur Guðlaugsson prófastur Hluga-
staðakirkju nýtt harmoníum, og verður það afhent 3. n. m.
Kirkjukórasamband íslands hefir unnið hið þarfasta verk.
Hafa 12 kennarar ferðazt um landið á vegum þess og kennt
58 kirkjukórum söng í 73 vikur. Er þó sambandið ungt, aðeins
4 ára. Mesta kennslu hafa þeir innt af höndum organleik-
ararnir Kjartan Jóhannesson og Eyþór Stefánsson. Sambandið
hélt aðalfund sinn 24. júní. Sigurður Birkis söngmálastjóri er
formaður þess, og hefir svo verið frá upphafi. Starf það, er