Kirkjuritið - 01.08.1955, Blaðsíða 40
326
KIRKJURITIÐ
Hitt er breyting á lögunum um biskupskosningu, og er aðal-
breytingin sú, að hver kjósandi tilnefnir einn mann til biskups og
sá er rétt kjörinn, sem fær fullan helming atkvæða. Ella velur
ráðherra milli þeirra þriggja, er flest fá atkvæði.
Barnaheimilisnef:nd.
Séra Garðar Þorsteinsson, gjaldkeri Barnaheimilisnefndar,
las reikninga tveggja síðustu ára yfir tekjur af merkjasölu.
Voru tekjurnar 1953 kr. 17229,10 og 1954 kr. 17616,37. Er
sjóðurinn þá kr. 147918,34.
Formaður nefndarinnar, séra Ingólfur Ástmarsson, Mosfelli,
flutti því næst skýrslu nefndarinnar, einkum um barnaheimilið,
sem hefir nú starfað um 25 ár.
F ermingar undirbúningur.
Séra Gunnar Árnason flutti erindi: Undirbúningstími barna
hjá presti fyrir fermingu. Verður erindi þetta birt hér í ritinu.
Urðu um það töluverðar umræður og gerðar ályktanir. í nefnd
þá, sem ein ályktunin gerir ráð fyrir, voru kosnir: Séra Gunnar
Árnason, séra Óskar J. Þorláksson og séra Magnús Guðmunds-
son.
Allsherjarnefnd.
Kosin var snemma á prestastefnunni allsherjarnefnd, þeir
prófessor Sigurbjörn Einarsson, séra Pétur Sigurgeirsson, séra
Sigurður Stefánsson, séra Gísli Brynjólfsson, séra Páll Þorleifs-
son og séra Einar Guðnason. Var vísað til hennar fjölda tillagna
til athugunar, og er hér ekki skýrt frá þeim fram yfir það,
sem samþykkt var og kemur fram í fundarályktunum hér á
eftir. Flestar tillögurnar voru samþykktar óbreyttar, en nokkrar
með breytingum eða lagfæringum allsherjarnefndar.
Fundarslit að Bessastöðum.
Síðasta fundardaginn kl. 2 var haldið að Bessastöðum. Gengu
prestar ásamt forseta og biskupi til kirkju. Þar prédikaði
biskup, en sóknarpresturinn, séra Garðar Þorsteinsson, var fyrir
altari. Forseti ávarpaði prestastefnuna með mikilli ræðu. Verður