Kirkjuritið - 01.08.1955, Blaðsíða 30
316
KIRKJURITIÐ
fellskirkju sunnudaginn 13. marz og Innri-Njarðvíkur og Kefla-
víkurkirkjur sunnudaginn 12. júní.
Mun ég ef til vill síðar skýra nánar í Kirkjuritinu frá vísitazíu
minni í Kjalarnessprófastsdæmi að henni lokinni. En sömu
ágætu viðtökurnar á ég þar að þakka prestum og söfnuðum.
Dagana 22. nóvember til 5. desember var ég í utanför til
stjórnarfundar í Kirknasambandi Norðurlanda og aðstoðar við
biskupsvígslu í Uppsölum, og vísa ég í því sambandi til greinar
minnar í janúarhefti Kirkjuritsins. Er ég nú þetta árið for-
maður sambandsins og verð að forfallalausu að fara til stjórn-
arfundar í Borgá í Finnlandi í lok ágústmánaðar. Erkibiskup
Finna bauð okkur hjónunum til hátíðahalda í Finnlandi á níu
alda afmæli kristninnar þar 18. til 19. maí. En boðinu seinkaði
svo af völdum verkfallsins, að við gátum ekki þegið það. Sendi
ég erkibiskupi ávarp til kirkju Finnlands frá kirkju íslands.
Af kirkjulegum fundum má einkum nefna tvo aðalfundi
Prestafélags íslands. Var hinn fyrri haldinn 24. júní og hefir
skýrsla um hann birzt í okt. til nóv. hefti Kirkjuritsins. Síðari
fundurinn var haldinn í gær og var aðalmál hans launakjör
presta. Stjórn félagsins skipa nú:
Séra Jakob Jónsson, formaður.
Séra Jón Þorvarðsson, prófastur.
Séra Sigurbjörn Einarsson, prófessor.
Séra Sigurjón Guðjónsson, prófastur.
Séra Sveinbjörn Högnason, prestur.
Deildir Prestafélagsins hafa einnig haldið aðalfundi sína, og
er skýrt frá þeim í Kirkjuritinu.
„Samtök presta og lækna“ héldu aðalfund sinn 22. júní f. á.
og var stjórnin öll endurkjörin. En hana skipa: Séra Magnús
Guðmundsson, formaður, Alfreð Gíslason læknir, varaformaður,
séra Þorsteinn L. Jónsson, ritari, séra Jakob Jónsson, Ezra
Pétursson læknir, féhirðir, og Kristján Þorvarðarson læknir.
Fyrirlestrar voru haldnir á flestum deildarfundum Prestafélags-
ins um mál, er varða samstarf presta og lækna. Fluttu hvorir
tveggja, prestar og læknar.
Skálholtshátíð fór fram að viðstöddu fjölmenni sunnudaginn
18. júlí. Hún hófst með guðsþjónustu í Skálholtskirkju. Við
dr. Bjarni Jónsson vígslubiskup þjónuðum báðir fyrir altari,