Kirkjuritið - 01.08.1955, Qupperneq 33
PRESTASTEFNAN 1955
319
Kirkjuritsins, og verður hér látið nægja að vísa til hennar. En
mörg rit og ritlingar hafa þegar verið samin um þingið. Varðar
nú mestu kirkjudeildirnar, að þeim auðnist að vaxa saman og
láta öll ágreiningsatriði þoka til hliðar fyrir einkavon heimsins,
Jesú Kristi, Guðs syni og frelsara mannanna.
Séra Pétur Magnússon sat þing þetta um skeið, ennfremur
Kristján Búason stud. theol. og Þórir Kr. Þórðarson dósent.
Á leiðinni til Evanston heimsóttu nokkrir fulltrúar ung-
mennasamtakanna ísland, dagana 15.—19. júlí. Meðal þeirra
var formaður samtakanna, ungfrú Fraser.
Af öðrum erlendum gestum, sem hafa heimsótt kirkju vora,
vil ég einkum nefna: Séra Bengt-Thure Molander, framkvæmda-
stjóra Alkirkjuráðsins í Genf, dr. Paul Empie, forystumann
Lúterska heimssambandsins í Vesturheimi og sex sænska full-
trúa námsflokka sænsku kirkjunnar. Var meðal þeirra vara-
formaður þeirra, séra Thorsten Áberg lýðháskólakennari, og
framkvæmdastjóri, séra Gösta Herthelius.
Yfirleitt er sambandið að verða nánara með kirkju íslands
og Lúterska heimssambandinu og Alkirkjuráðinu, og tekur nú
kirkja íslands þátt í hjálparstarfinu fyrir bágstadda flóttamenn
á Sýrlandi og Gyðingalandi. Fór fram fjársöfnun í því skyni
í kirkjum landsins sunnudaginn 21. nóvember, og auk þess bár-
ust nokkrar fleiri gjafir. Alls söfnuðust kr. 76038.26, og flyt
ég landslýð öllum alúðarþakkir fyrir drengilegar og skjótar
undirtektir, sem ég tel þjóðinni til mikils sóma. Ég keypti hjá
h.f. Lýsi um fjórar smálestir af meðalalýsi, eins og lofað hafði
verið, að gjört yrði á íslandi að þessu sinni. En h.f. Lýsi tók
sjálft þátt í gjöfinni með því að selja lýsið aðeins á kr. 18592,67.
Áf samskotafénu eru því eftir lagðar í sparisjóðsbók kr.
57445.59, og mun þeim verða varið til lýsiskaupa næstu haust.
Sendingin komst með beztu skilum á ákvörðunarstað.
Enn vil ég nefna fjársöfnun til Ekknasjóðs íslands, sem fór
fram, eins og síðastliðið ár, annan sunnudag í marzmánuði.
Fram til síðustu áramóta höfðu safnazt í sjóðinn 28771.73 kr.
Nú söfnuðust 18113.64 kr. Alls er sjóðseignin 45981.83 kr.
Barnaheimilissjóður Þjóðkirkjunnar hefir eflzt nokkuð á ár-
inu, og verður gefin um hann sérstök skýrsla síðar á presta-
stefnunni af formanni barnaheimilisnefndar.
Fjárveitingar til kirkjumála á 14. gr. fjárlaga 1955 hafa