Kirkjuritið - 01.08.1955, Side 42
328
KIRKJURITIÐ
bókar. Úrval þetta verði sent öllum prestum til athugunar og
umsagnar á komandi vetri, og síðan borið fram á næstu presta-
stefnu.
Æskulýösstarf. Prestastefna íslands 1955 telur æskilegt, að
þjóðkirkjan helgi einn dag á ári hverju sérstaklega boðun krist-
innar trúar meðal æskulýðs landsins. Felur hún biskupi að at-
huga nánar tilhögun þessa að öðru leyti.
Varaprestur. Prestastefnan mælir hið bezta með frumvarpi
því um varaprest, er borið var fram á síðasta alþingi, og æskir
þess, að það nái fram að ganga.
Morgunútvarp. Jafnframt því sem prestastefnan lýsir ánægju
sinni yfir þeirri ráðstöfun útvarpsráðs að láta morgundagskrá
útvarpsins hefjast með morgunbænum dag hvern, beinir hún
þeim tilmælum til ráðsins, að það hlutist til um, að sunginn
verði sálmur eða vers á undan og eftir ritningarorðunum, svo
að styðjast megi við þessa athöfn við morgunsöng í skólum, þar
sem enginn organisti er til að leiða sönginn.
Ennfremur mælist prestastefnan til þess, að útvarpið taki
upp sem sérstakan dagskrárlið, einu sinni í viku, kennslu í
sálmasöng, þar sem vakin er athygli á fögrum sálmalögum og
þau sungin þar og kynnt eftir föngum.
BisJcupskjör. Prestastefnan telur æskilegt, að lögunum um
biskupskjör verði breytt í þá átt, sem frumvarp það, er fyrir
prestastefnunni liggur, vísar, en óskar jafnframt eftir því, að
frumvarpið verði sent prestum landsins til nánari athugunar og
umsagnar.
Kirkjubyggingasjóður. Þar sem reynslan sýnir þegar, hve
lánsþörf úr kirkjubyggingasjóði er mikil og verksvið hans hefir
jafnframt verið fært út, þá leyfir prestastefnan sér að skora
á alþingi, að hækka framlag til sjóðsins um 500 þúsund krónur
á ári.
Raforka til kirkna. Prestastefnan telur það nauðsynlegt, að
kirkjur fái að njóta sem beztra kjara við innlagningu heim-
taugar og notkun raforku til hita og ljósa.
Kirkjuítök. Prestastefnan vottar eindregið fylgi sitt við