Kirkjuritið - 01.08.1955, Blaðsíða 47
Séra Matthías Eggertsson
NÍRÆÐUR
Séra Matthías Eggertsson, sem
oftast hefir verið kenndur við sitt
langa og mikla prestsstarf í Gríms-
ey, er fæddur 15. júní 1865 á Mela-
nesi á Rauðasandi. Hann er sonur
Eggerts Jochumssonar kennara og
sýsluskrifara, bróður séra Matt-
híasar skálds og konu hans Guð-
bjargar Ólafsdóttur frá Rauðanúpi
á Langadalsströnd.
Hann varð stúdent úr latínuskól-
anum í Reykjavík 1883. Fetaði þá
fyrst í fótspor föður síns og gerð-
ist barnakennari á ísafirði og
sýsluskrifari 1883—1885. En eftir
það gekk hann í prestaskólann og
varð kandidat þaðan 1888. Prestur
var hann í Helgastaðaprestakalli í
Suður-Þingeyjarsýslu 1888—1905, er honum var veitt Gríms-
eyjarprestakall. Sat að Miðgörðum í Grímsey og gegndi þessu af-
skekkta og sérkennilega prestakalli til 1936, er hann lét af em-
bætti, kominn yfir sjötugt. Gegndi hann þá jafnframt stundum
skólastjórastarfi í eynni og var um 30 ára skeið sýslunefndar-
maður.
Má nærri geta, hve mikið þessi vel gefni og þrekmikli maður
hefir mótað líf sóknarbarna sinna á þessum langa starfsferli.
Er það og ærin mannlýsing eitt út af fyrir sig, að hann skyldi
ekki yfirgefa þetta afskekkta kall, og þykjast hafa goldið torfa-
lögin eftir nokkurra ára starf, heldur þola þar súrt og sætt með
hjörð sinni meðan kraftar entust.
Kona séra Matthíasar var Guðný Guðmundsdóttir frá Svert-
ingsstöðum í Kaupvangssveit og eignuðust þau 8 syni og 6
dætur.
Séra Matthías hefir safnað miklu af sögulegum fróðleik og
á mikið safn blaða og annarra bóka. Hann mun vera næst elztur
vígðra manna á íslandi.
Óskar Kirkjuritið honum blessunar á æfikvöldi hans.
Séra Matthías Eggertsson
M.