Kirkjuritið - 01.08.1955, Page 50

Kirkjuritið - 01.08.1955, Page 50
336 KIRKJURITIÐ var slíkt hljóðfæri þá aðeins til í Dómkirkjunni í Reykjavík. En fyrir þremur árum var kosin 6 manna nefnd, er tók að sér að vinna að því að afla fjár til kaupa á nýju hljóðfæri til kirkjunnar. Adolf Björnsson bankafulltrúi var formaður nefnd- arinnar. — Fyrsti organleikari kirkjunnar var Friðrik Bjarna- son tónskáld, en eftirmaður hans Páll Kr. Pálsson. Sunnudaginn 3. júlí var hið nýja orgel vígt við hátíðarguðs- þjónustu í kirkjunni, en á eftir bauð sóknarnefnd öllum kirkju- gestum til kaffidrykkju í Alþýðuhúsinu. Hið nýja orgel Hafnarfjarðarkirkju er með 30 raddir, sem skiptast þannig: Fótspil 7. Aðalverk 9. Skápverk 8 og krón- verk 6 (alls 30) raddir. Öll smíði orgelsins er hin fullkomnasta, stöðugleiki og ending efnis á að vera í bezta lagi. Orgelið er smíðað í verksmiðjum Walckers í Ludwigburg í Suður-Þýzkalandi. Verksmiðja þessi, sem er stofnuð árið 1781, er ein stærsta og þekktasta orgelverksmiðja heims. Þýzkur maður, Paul Mund, hefir sett orgelið upp, en hann er snjall í sinni grein. Er vandað til uppsetningar orgelsins í hvívetna. Má segja, að orgelið sameini alla beztu kosti þýzkra og brezkra orgela. — í orgelinu eru 2200 pípur, þær stærstu eru 2,80 metrar. Minnsta tónlengd er 12 mm. ★ Prestskvennafundur fyrir Norðurlönd næsta ár. Calina Fuglsang-Damgaard biskupsfrú hefir boðið íslenzkum prestskonum til prestskvennafundar fyrir Norðurlönd, er hald- inn verður að forfallalausu að Nyborg Strand á Fjóni 11.—14- september 1956. Ef einhverjar prestskonur hér á landi skyldu hugsa sér að sækja fundinn, eru þær beðnar að láta frú Steinunni Magnús- dóttur, Laufásvegi 75, Reykjavík, vita um það. KIRKJURITIÐ kemur út 10 sinnum á ári. — Verð kr. 35.00. Afgreiðsla hjá Elízabet Helgadóttur, Hringbraut 44. Sími 4776.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.