Kirkjuritið - 01.12.1956, Síða 49
PREDIKARINN
487
hrós fyrir þessar predikanir, sem voru greið og góð svör að
úliti fólksins, við ýmsum vandamálum, sem það velti fyrir sér.
Predikarinn verður alltaf að vera kennari í starfi sínu, fræðsla
er nauðsynleg í öllum predikunum.
Reynsla snjöllustu predikara veraldar fyrr og síðar sannar,
•að smásögur og dæmi úr daglegu lífi hafa ákaflega mikið gildi
i predikunum. Kristur sjálfur notaði þá aðferð alveg sérstaklega
°g sýndi þannig fylgjendum sínum hina áhrifaríkustu leið í
ræðugerð. Þar eru dæmisögur lians frægust sönnun. Og í Fjall-
ræðunni nefnir hann einnig dæmi og endar hana með líkingu.
Allir predikarar ættu að hafa opin augu og eyru fyrir slíku
efni, bæði í bókum og þó einkum lífinu sjálfu. Og þeir þurfa
RÖ æfa sig að móta slíkar frásagnir í stuttu, áhrifamiklu formi.
Þannig verða ræður bæði minnisstæðari og áhrifameiri. Ein lítil
saga getnr orðið líkt og perla, sem geislar frá sér öllum Ijóma
predikunarinnar og minnir á allt, sem máli skiptir gagnvart henni.
Stundum er spurt: Eiga predikanir að vera skrifaðar?
Sagt er, að prestur nokkur hafi sagt, þegar um þetta var talað:
„Minn söfnuður kærir sig ekki um formbundnar predikanir.
Hann vill helzt, að ég mæli af munni fram nokkur vel valin orð.“
Aðrir telja sig ekki hafa tíma til að skrifa sínar predikanir,
það taki svo ægilegan tíma frá öðrum nytsamari störfum. Þeir
fáta því nægja að líta yfir textana á laugardögum og merkja við
-einhvern kafla, sem auðvelt sé að þrugla um í tíu til fimmtán
minútur. Enn eru þeir til, sem segja, að skrifuð ræða verði alltaf
ahrifaminni en óskrifuð. Allt þetta hefir við einhver rök að
styðjast. En eitt er víst, skrifuð ræða verður yfirleitt betur unn-
ln og hugsuð en óskrifuð. Þar er hægt að breyta og bæta um,
íhuga og lagfæra.
Hitt er svo annað mál, að aldrei ætti að lesa predikun, heldur
flytja af lífi og sál, lielzt án þess að horfa á handrit sitt, nema
rett til stuðnings. Predikun er ekki vel undir búin fyrr en hún
ei hreinrituð og svo næstum lærð orði til orðs og tileinkuð hug
°g hjarta með raddblæ og svipbrigðum. Fátt er átakanlegra við
starf sitt en predikari, sem verður næstum að stafa sig fram úr
sinu eigin handriti frammi fyrir áheyrendum.