Kirkjuritið - 01.12.1956, Qupperneq 58
496
KIRKJURITIÐ
Þá gat prófastur þess, að víða væri unnið af kappi að viðhaldi og endur-
bótum á kirkjuhúsum í prófastsdæminu. Samanlagður kostnaður við þessar
framkvæmdir nam hálfri milljón króna s. 1. ár, og voru allar liorfur á, að
sú upphæð yrði ekki lægri á þessu ári. Auk þess hefðu sóknarmenn lagt
mikla vinnu af mörkum endurgjaldslaust. Fór prófastur viðurkenningar-
orðum um þetta mikla og fómfúsa starf, er að lang mestu leyti væri greitt
fyrir með gjafafé í söfnuðunum. Mestar umbætur voru gerðar á Lágafells-
kirkju og Landakirkju í Vestmannaeyjum. í sambandi við þetta mál, sam-
þykkti fundurinn einróma eftirfarandi tillögu:
„Héraðsfundur Kjalamesprófastsdæmis skorar á hið háa Alþingi, að
hækka verulega framlag ríkisins til kirkjubyggingasjóðs“.
A fundinum flutti Sigurður Birkis, söngmálastjóri, erindi um kirkju-
söng og söngkennslu í bamaskólum. Hvatti hann til meira samstarfs kirkju
og skóla í söngkennslumálum. Var góður rómur gerður að erindi lians. Páll
Kr. Pálsson, organleikari, kom einnig á fundinn, lék fyrir sálmasöng og að
auki kirkjutónverk eftir Bach.
Að fundi loknum sátu fundannenn boð lieima hjá prófastshjónunum.
Bíldudalskirkja átti hálfrar aldar afmæh 2. des. Var þess minnzt
með veglegum hátíðahöldum.
Fimmtugir urðu þeir nýlega séra Oskar J. Þorláksson, dómkirkju-
prestur (5. nóv.), séra Jón Þorvarðsson í Háteigsprestakalli (10. nóv.), og
Garðar prófastur Þorsteinsson í Hafnarfirði (2. des.). Mun þeirra nánar
getið í næsta liefti ritsins.
KIRKJURITIÐ
kemur út 10 sinnum á ári. — Verð kr. 35.00.
Afgreiðsla hjá Elísabetu Helgadóttur, Hringbraut 44. Simi 4776.
‘XirhiuriliÖ óskar ölíum
Usmdum sínum
grleðileg'ra jj «> 1 a .