Kirkjuritið - 01.10.1957, Blaðsíða 25

Kirkjuritið - 01.10.1957, Blaðsíða 25
359 KIRKJUFÉLAGIÐ í VESTURHEÍMÍ enginn þessara fimm af íslenzku œttum, en dugmiklir eru þeir og vinna nrikið og bera hag Kirkju- félagsins mjög fyrir brjósti. Ekki er nafnið, með sínum íslenzka keim, neinn þymir í augum, held- ur eru þeim vel ljós þau tengsl, sem eru á mili fólksins af ísíenzk- um ættum beggja megin hafsins, svo og þau órofa tengsl, sem eru milli hinnar íslenzku þjóðkirkju og Kirkjufélagsins. Auk hinna fimm presta bættist Kirkjufélaginu góð- ur liðsauki þar sem frú Laufey Olson er. Mun hún starfa á veg- um Kirkjufélagsins og sjá um barnafræðslu og ungmennastarf. Hefir hún verið í sérstökum skóla bl að búa sig undir þetta starf og útskrifaðist þaðan í vor. Þá tóku fjármáhn skiljanlega töluverðan tíma. Endanleg fjárhagsáætlun fyrir árið 1957 er $27.4000.00. Hvort okkur tekst að ná þessu marki, er annað mál en með sameinuðu átaki ætti það að vera unnt. A kvöldin Ihöfðum við samkomur, sem allar voru frábærlega vel sóttar °g undirtektir ágætar. Vom það bæði lieimamenn og gestir, sem þar létu til sín lieyra. íslenzk samkoma var íhaldin kvöldið áður en þingið hófst. bar sýndi séra Valdimar myndir, sem hann tók á Skálholtshatíðinni og víðar heima. Einnig tö’luðu þeir prófessorarnir Ricliard Beck og Haraldur Bessason, en samkomustjóri var sóknarpresturinn. Samskot vom tekin a öll- um kvöldsamkomunum, og samtals vom þau 500 dollarar. Legar litið er á síðasta dag þingsins og stjórnarkosninguna, mætti lielzt buast við, að um stjórnarbyltingu hefði verið að ræða, svo er þo ekki. Akvæði í stjórnarskiá Kirkjufélagsins kveða svo á, að ekki megi neinn mað- ur lengur gegna forsetastörfum í einu en fimm ár. Séra Valdimar J. Ey- 'lands var því útilokaður frá forsetaembættinu nú. í hans stað var einroma kosinn séra Eric H. Sigmar, sem mörgum heima er að góðu kunnur, síð- an hann dvaldi lieima við nám í Háskólanum. Séra Valdimar var kjörinn varaforseti. Ritari var kjörinn séra Ólafur Skúlason, Mountain, og gjaldkeri Séra Eric Sigmar og séra Ólafur Skúlason.

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.