Kirkjuritið - 01.06.1958, Blaðsíða 3

Kirkjuritið - 01.06.1958, Blaðsíða 3
Heilbrigð lífsskoðun verður alltaf mests virði. Viðtal við Jón Pálmason fyrrv. alþingisforseta. Jón Pálmason bóndi á Akri er fæddur 28. nóv. 1888 á Ytri-Löngu- mýri í Austur-Húnavatnssyslu og kominn af kunnum ættum. Afi hans og alnafni var um skeið þingmaður E-Iúnvetninga, og einnig föðurbróðir hans, Þorleifur Jónsson, síðar póst- meistari i Reykjavik. Sjúlfur hefir fón verið Jnngmaður frá þvi 1933, og er allra kunnugra mál, að persónu- fylgi ráði þar miklu um. Hann var lengi forseti sameinaðs Alþingis. og eitt sinn landbúnaðarráðherra um tíma. Jón er búfræðingur frá Hólum og hefir verið bóndi í 45 ár, lengst af á Akri. Hann er mótaður af aldagam- alli íslenzkri alþýðumenningu, rót- fastur sveitamaður með óvanalega reynslu af viðtæku þjóðmálastarfi og fjölbreytilegum kynnum við margs konar menn. Fyrir því þótti mér ekki °fróðlegt að heyra álit hans um nokkur þau mál, sem rit þetta er sérstak- f°ga helgað. — G. Á. Hvernig var andlega andrúmsloftiS á uppvaxtarárum þín- Llrn í Húnavatnssýslu? Fyrir og um aldamótin síðustu var áreiðanlega gott and- rumsloft í trúarefnum um austanverða Húnavatnssýslu, þar sem ég var kunnugur. Prestar voru mikils virtir leiðtogar og guðstrúin vakandi. Varst þú ekki alinn upp á trúræknu heimili? Foreldrar mínir voru bæði trúuð á sannleiksgildi kristin- 16

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.