Kirkjuritið - 01.06.1958, Blaðsíða 23

Kirkjuritið - 01.06.1958, Blaðsíða 23
KIRKJURITIÐ 261 Þetta er eðlilegt, því að mönnum hefir verið og er enn talin trú um það af þeim, sem ekki vilja trúa neinu, eins og þeir sjálfir segja, en eru þó ra unar allra manna trúgjarnastir. Því að þeir trúa því jafnvel, að þeir viti að kalla allt, sem vitað verður, enda sé eiginlega ekkert að vita annað en það, sem ber fyrir augu og eyru dags daglega. Svarið við því er einörð jótning þeirrar trúar í orði og verki, sem er fullvissa um það, sem vér vonum, og sannfæring um þá hluti, sem ekki er auð- ið sjá. Og að hvetja jafnan ævinlega og alls staðar alla til að leita alls sannleikans. Þótt sú leit leiði á stundmn til falls fagurra hugsmíða eða einhvers, sem gert hefir verið í góðri trú, sakar það ekki. Það er aðeins eins og þegar sól grisjar þoku á tindi. Merk nýbreytni. Sunnudaginn 18. maí s. 1., og eins næsta kvöld þar á eftir, var helgileikurinn Bartimeus blindi eftir séra Jakob Jónsson sýndur í Bessastaðakirkju. Það var sérstæð nýjung, sem var vel fagnað af áhorfendum, enda voru þeir meira og minna af henni snortnir. Helgileikir tíðkuðust allsnemma innan ka- þólsku kirkjunnar, og má telja nokkur tengsl milli þeirra og hinna grísku harmleika, þar sem goðin komu mjög við sögu. Tilgangur helgileikanna siðar í kirkjunni, svipaður og helgi- myndanna, að láta söfnuðina sjá það með eigin augum sér til hrifningar og skilningsauka, sem þeim var annars mein- að sakir vanþekkingar að lesa um i heilagri Ritningu. Ég er ekki svo fróður, að ég viti, hvort slíkir leikir hafa nokkru sinni farið fram í íslenzkum kirkjum, en þeir voru einkum algengir í Norðurálfu á miðöldum. Síðan hefir færzt nýtt fjör í þá á síðustu árum. Frægastir í nútíðinni eru píslarleikirnir í Ober- Ammergau í Bæheimi. Þeir hafa verið haldnir á hverjum sunnudegi 10. hvert ár, siðan 1634 að plágan gekk þar, og eiga vart sinn líka á margan hátt. En mótmælendakirkjur hafa líka tekið upp helgileiki bæði austan hafs og vestan og m. a. í Svíþjóð. Þar mun nú fyrirhugað, að þessi leikur séra Jakohs

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.