Kirkjuritið - 01.06.1958, Blaðsíða 46
284
KIRKJURITIÐ
voru í undirbúningsnefnd séra Árni Sigurðsson og séra Björn Björnsson.
Séra Pétur Ingjaldsson flutti erindi, en séra Gunnar Gislason sá um kvöld-
vökuna, en hana undirbjuggu auk hans frú Dómhildur Jónsdóttir á Hös-
kuldsstöðum, og Eyþór Stefánsson tónskáld stjórnaði söngnum. Séra Árni
Sigurðsson prédikaði í Hóladómkirkju, en séra Björn Björnsson þjónaði
fyrir altari.
Á Laugum í Þingeyjarsýslu voru rúmlega 150 þátttakendur úr Þing-
eyjar- og Eyjafjarðarsýslum. Þar var mótsstjóri séra Pétur Sigurgeirsson,
en með honum í undirbúningsnefnd séra Lárus Halldórsson og séra Sig-
urður Guðmundsson. Séra Kristján Róbertsson flutti erindi kvöldsins, séra
Lárus Halldórsson stjórnaði kvöldvökunni. Guðsþjónustan fór fram í Ein-
arsstaðakirkju. Þar prédikaði séra Sigurður Haukur Guðjónsson, en sókn-
arprestur þjónaði fyrir altari.
I Skógaskóla komu um 60 þátttakendur, en auk þess komu allmargir
gestir á laugardagskvöld. Mótsstjóri var þar séra Sigurður Einarsson, en
í undirbúningsnefndinni voru einnig séra Arngrímur Jónsson og séra
Jónas Gislason. Gestur mótsins þar var Felix Ölafsson kristniboði, sem
flutti erindi og sýndi myndir frá starfi kristniboðanna í Konsó. Séra Jónas
Gislason stjórnaði kvöldvökunni. Guðsþjónustan fór fram í Ásólfsskála-
kirkju. Þar prédikaði séra Hannes Guðmundsson, en séra Arngrimur Jóns-
son þjónaði fyrir altari. Fjölmenn altarisganga fór þar og fram.
Fjölmennasta mótið var að Laugarvatni. Þar voru á 3. hundrað þátt-
takendur. Auk hópa úr Árnessýslu komu þangað flokkar úr Háteigssókn
og Langholtssókn í Reykjavík, og einnig frá Keflavik og Útskálum. Séra
Ingólfur Ástmarsson stýrði mótinu, en með honum í undirbúningsnefnd
voru séra Sigurður Pálsson og séra Magnús Guðjónsson, sem einnig sá um
kvöldvökuna. Séra Jóhann Hannesson flutti erindi um einkunnarorð mót-
anna. Nemendur iþróttakennaraskólans skipulögðu iþróttir og leiki meðal
þátttakenda. Við guðsþjónustuna prédikaði séra Björn Jónsson í Keflavík,
en séra Guðmundur á Útskálum þjónaði fyrir altari.
Á flestum mótsstöðunum var dreginn að húni með íslenzka fánanum
sérstakur æskulýðsfáni þjóðkirkjunnar, sem þykir hinn fegursti. Biskup
Islands sendi þátttakendum allra mótanna kveðjuskeyti. Veður var yfir-
leitt hagstætt og í heild tókust mótin mjög vel. Stjórnendur mótanna hafa
allir tekið fram, hversu frábærlega skólastjórar á hinum ýmsu stöðum og
annað starfslið hafi gert allt til þess, að mótin gætu farið sem bezt fram,
og eiga allir þessir aðilar miklar þakkir skildar.
í byrjun júlí munu enn fara fram tvö mót, að Eiðum og að Núpi í
Dýrafirði.