Kirkjuritið - 01.06.1958, Side 4
242
KIRKJURITIÐ
dómsins og einlæg í trú sinni. Efasemdir um undirstöðuatriði
trúarbragðanna voru þeim fjarlægar. Þau voru sannfærð um,
að hagur lífsins byggðist á æðri stjóm, og innrættu bömum
sínum og heimafólki það, að fylgja boðum og kenningum
kirkjunnar.
HöfSu húslestrarnir nokkurt gildi fyrir þigp
Húslestrar vora um hönd hafðir á mínu heimili alla daga
að vetrinum og alla helga daga að sumrinu. Kann þó að hafa
frá þessu brugðið þá helgidaga, sem húsbændur og flest
heimafólk fór til kirkju. Ég og mín systkini hlýddum með
áhuga á húslesturinn oftast nær. Mest þótti mér varið í ræð-
ur séra Páls Sigurðssonar. Rökfestan og málsnilldin var þar
mest.
Gekkstu lengi til spurninga, og varS fermingarathöfnin þér
minnisstceÖ?
Ég gekk til spurninga síðari hluta vetrar í f jóra vetur. Ferm-
ingin var mér helg athöfn. Minn sóknarprestur, séra Stefán
M. Jónsson á Auðkúlu, var elskaður og virtur af sínu sóknar-
fólki. Hann var glæsimenni í útliti og framkomu. Áhuga-
samur um alla menntun og einlægur í trú sinni. Kirkjusókn
hjá honum var í bezta lagi og frábær gestrisni á báðum kirkju-
stöðum, Svínavatni og Auðkúlu. Presturinn var andlegur leið-
togi sinna safnaða.
Hefir áhugi þinn í trúarlegum efnum vaxiÖ eÖa þorriÖ um
œvina?
Því er nokkuð örðugt að svara ákveðið, því að aðstaða barn-
æsku og fullorðinsára er nokkuð ólík hjá mér sem öðrum. Hitt
get ég sagt, að ég hefi eigi orðið fyrir neinum áföllum í trúar-
efnum, þannig, að mín barnatrú hafi fokið út í buskann með
nýjum viðfangsefnum og veraldarvési.
Bendir reynsla þín til þess, aÖ œÖri máttarvöld séu til og
hafi hönd í bagga meÖ oss mönnunum?
Ég hefi aldrei efazt um, að svo er. Hefi lika sannfærzt um
það með draumum og annarri reynslu. 1 ræðu og riti og ljóð-
um hefi ég aldrei dregið dul á skoðun mína í þeim efnum.
Telur þú bænina mikilsverÖa?