Kirkjuritið - 01.06.1958, Síða 22
260
KIRKJURITIÐ
skilningi á tilgangi lífsins. Ég skaut því inn í, að víst væri
efnishyggjan of rík, of fáir, sem leituðu skilnings á því, sem
fælist að baki hlutanna. Þá kom ókunni maðurinn mér á óvart,
því að hann svaraði gremjulega á þessa leið: „En við hverju
öðru er að búast, þegar mönnum er bannað að leita sannleik-
ans.“ Ég hváði eftir því, hvað hann ætti við, hverjir gerðu það
hér á íslandi. Hann taldi sig eiga við hina andlegu leiðtoga.
Sumir ömuðust við því, að menn leituðu sannana fyrir fram-
haldstilveru, og aðrir mættu ekki heyra, að neinn væri ann-
arrar skoðunar en þeir um trúarkenningarnar. Ég maldaði i
móinn. Cvíða væri meira víðsýni eða umburðarlyndi í þess-
um efnum en hérlendis. En ég gat ekki með öllu synjað fyrir
það, að hann hefði nokkuð til síns máls. Ég hafði þá nýlega
verið á fundi og haldið því fram, að þörf væri á að gefa út
Biblíuna með stuttum, handhægum skýringum, ekki að öihi
ólíkt Fornritaútgáfunni. En þetta fékk daufar undirtektir.
Jafnvel þjóðkunnur maður færði fyrir það fætur á þeim grund-
velli, að þetta gætu orðið óskýringar, leitt almúgann afvega i
trúarefnum, ruglað hann í ríminu. Ég hugsaði til þess, er
kaþólska kirkjan vantreysti svo skilningi fólksins, að hún
bannaði þvi almennan Biblíulestur, og gaf Biblíuna heldur
ekki út á þjóðtungunum.
Sannleikurinn er hins vegar sá, að menn hafa ekki ákjósan-
lega aðstöðu til að lesa Biblíuna sér til fulls skilnings skýr-
ingalaust. Og alls konar vitleysa er boðuð í nafni Guðs af
beinum misskilningi á hinum og þessum Bitningarstöðum. Og
að aldrei er oss skylt að leita sannleikans, ef ekki í trúmálum,
— í því, sem vér kennum sérstaklega við Guð sannleikans.
Engin kirkja á rétt til að sniðganga sannleikann í boðun sinni,
né meina nokkrum safnaðarmeðlimi að leita hans eins ein-
læglega og hann getur. Þótt hér gæti lítið þröngsýnis á þess-
um vettvangi, er samt rétt að þessi rödd fái að heyrast. Þetta
mál mannsins á götunni er ekki einstætt. Fjöldi manns tor-
tryggir það hvort tveggja, að vér prestarnir og aðrir trúmenn
leitum sannleikans hlífðarlaust, hvað sem upp kann að koma,
og að unnt sé að öðlast áreiðanlega vissu um trúarleg efm.