Kirkjuritið - 01.06.1958, Page 33

Kirkjuritið - 01.06.1958, Page 33
KIRKJUHITIÐ 271 vart við breytingu til batnaðar í þessum efnum meðal erlendra þjóða, og að vér Islendingar séum á eftir öðrum í þessu efni, eins og oft hefir verið, þegar um erlendar hrcyfingar hefir verið að ræða. Það er litið svo á, að gildi kristindómsins sé nú aftur að hljóta viðurkenningu og barátta sé hafin fyrir auknu siðgæði. Mér er því miður ekki svo kunnugt, að ég geti hér frá því skýrt, hver og hve mikil rök þessi skoðun hefir við að styðjast, en víst benda ýmsar fregnir í þessa átt, og sannarlega er vonandi, að svo sé. Þjóð vor hefir þörf á slíkri breytingu, og kirkja vor verður að vinna að henni af öllum mætti. Þrátt fyrir deyfð og áhuga- leysi á yfirborðinu um kirkjunnar mál er því ekki að neita, að á þessu sviði finnast nokkrir bjartir blettir, sem benda á ítök kirkjunnar í huga þjóðarinnar og gefa von um breytingu til batnaðar. Ég vil drepa á nokkur atriði. Þegar veraldlega valdið sýnir sig í því að vilja draga úr starfsemi kirkjunnar, eða þegar um það er rætt að fækka kirkjum, þá sýnir það sig, að fólkið vill ekki missa presta sína og kirkjur Þar er ekki eingöngu um eldra fólk að ræða og tæplega hægt að líta svo á, að þar sé um fordild eina að ræða. 1 öðru lagi hafa margir söfnuðir lagt töluvert hart að sér til að koma upp kirkjum og halda þeim við. Söfnuðirnir myndu áreiðanlega ekki leggja á sig byrðar og færa miklar fórnir, ef þeim væri þetta ekki al- vörumál og þeir væru sannfærðir um gildi kirkjunnar. í þriðja lagi má nefna kirkjukórana. 1 mörgum söfnuðum hefir hópur manna lagt á sig þá vinnu, að starfa í kirkjukór og gengizt undir þá skyldu, sem því er samfara. Þetta sýnir lofsverðan áhuga. Hitt er svo annað mál, að skoðanir geta verið skiptar um það, hvort kóramir nái því marki i guðsþjónustunum, sem þeim er ætlað og þeim verður að ætla. Út í það verður ekki farið hér, enda er það sérstakt athugunarefni. Enn má nefna, að nú virðist vaknaður nokkur áhugi á því að kynnast sögu og starfi hinnar íslenzku kirkju um liðnar aldir. Kemur þessi áhugi nú einkum fram í sambandi við Skál- holt. Það er vissulega hverjum manni hollt að kynnast því mikla og göfuga starfi, sem kirkja vor hefir unnið í þarfir

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.